Miðvikudagur í fríinu :-)

Jæja, enn halda góðir frídagar áfram. Í góðum félagsskap, góðu veðri og góðu skapi :-). Í morgun fórum við á Naturama með Morten, Laura og Malthe. Við tókum ekki mikið af myndum, því það var mikið að gera í að finna dýr sem stálu páskaeggi og vera í safarí. Eftir ferðina sagði Óliver: “Laura og jeg kan godt være venner, vi har haft det så hyggeligt sammen”.

Svo þegar við vorum búin að borða hádegismat fórum við í sund með Lone og hennar gengi :-). Rosalega huggulegt. Og Röskva sagði: Hvor er det dejligt at Karoline, Anton og Emma vil med os i svømmehallen.

2011-04-20 004

Og svo fórum við í Kvickly að kaupa ventíla á hjólið gamla, sem Röskva gæti kannski hjólað á. Peter nágranni setti þá á fyrir okkur og pumpaði í. Svo er bara að sjá hvort dekkin haldi fram á morgun. Annars gæti mömmunni dottið í hug að fjárfesta í stelpuhjóli ;-). Og svo lá leiðin til Stefan, sem setti sumardekkin undir og lagaði ryspu fyrir mig…. ég keyrði óvart á girðinguna okkar um daginn… 😉 Óliver fékk að hjálpa og var í algeru spjallstuði.

2011-04-20 007 2011-04-20 009 +

Þegar því var lokið fórum við heim til Signe, Asger, Berthram og Stefan og grilluðum með þeim. Og ég gerði þetta fína salat sem ég lærði hjá Ane síðasta sunnudag. 🙂 Rosa huggó og ungarnir skemmtu sér vel. Og nú er þessi brilliant dagur að kvöldi komin.

Þe2011-04-20 011 2011-04-20 012

Svo við erum mjög sátt og krökkunum finnst dagarnir hafi alveg verið frábærir, svo það er ennþá gaman að vera í fríi 🙂 Og ég er svo fegin að það er svona mikið af fólki í kringum mig og okkur sem er boðið og búið að aðstoða mig 🙂

- 2 kommentarer til Miðvikudagur í fríinu :-)

Yes meira frí :-)

Jæja, þriðjudagur. Röskva var svo slöpp í morgun að þau fóru ekkert í leikskólann ungarnir. Signe kom í morgunkaffi og sem betur fer hressist dóttirin þegar á leið, svo við komumst út úr húsi. Fórum í bæinn og þau eyddu smá meira af jólagjafapeningnum frá Gunnu og Bjarna, við keyptum afmælisgjafir og fórum svo til Christiansminde og borðuðum nesti þar. Spiluðum minigolf, lékum, keyrðum á hlaupahjóli og keyptum ís 🙂 Rosa fínt veður og góð stemming. Fórum svo heim og borðuðum og Röskva puntaði Óliver og gerði hann fínan og svo horfðum við á “aulinn ég”. Nú er svo komið að háttatíma :-). Á morgun förum við á Naturama með Morten, vini mínum og hans börnum. Svo í sund með Lone, nágranna og ungunum hennar og borðum svo með Asger vini Ólivers og þeirri fjölskyldu. Svo það er nóg að gera í félagslífinu :-). Gaman að eiga svona marga góða vini finnst okkur!. Við erum þakklát og glöð :-).

2011-04-19 001 2011-04-19 002 2011-04-19 008 2011-04-19 010 2011-04-19 015 2011-04-19 016

- Ingen kommentarer til Yes meira frí :-)

Mánudagskvöld.

Flýti mér að setja inn myndir áður en Kim setur inn fullt af spennandi ferðamyndum 🙂 Ég bjó mér til nýtt horn í gærkvöldi. Og í dag tók ég svo vel til, að ég er alveg miður mín að engin hafi séð hvað er hér fínt 🙂 En við Röskva og Óliver erum sátt við það. Mathias vinur Ólivers kom með okkur heim og á leiðinni komum við við í Christiansminde til að athuga hvort krabbarnir væru komnir á stjá. Verðum víst að bíða aðeins enn. Heim í garðinn, borða kvöldmat, kvöldhjólatúr. Og daman alveg veik núna að fá stelpuhjól 🙂 og mamman þarf kannski líka að átta sig á að hún er að verða 4 ára og ekki reyna að halda henni eins og baby eins lengi og hægt er 🙂 og svo lúlla, lúlla. Nýr dagur á morgun. Gott veður og frí 🙂

2011-04-18 002 2011-04-18 003 2011-04-18 005 2011-04-18 006 2011-04-18 007 2011-04-18 010

- 1 kommentar til Mánudagskvöld.

Aaaah svo gott að vera í fríi :-)

Laugardagurinn var afskaplega afslappaður og fínn. Við gerðum ekki neitt. Nema hér er Kim að naglalakka dótturina – þau eru nú meiri dúllurnar :-). Sunnudag hinsvegar fórum við aðeins út fyrir bæinn á bóndabæ, þar sem kýrnar fengu að koma út úr húsi í fyrsta sinn í ár. Við fórum með Ane, Andreas, Ölmu, Stormi og Viggu og með nesti og alles. Krakkarnir fengu ókeypis ný nestisbox – mikil hamingja 🙂 og Röskva valdi sjálf fötin. Gúmmístígvél, síðar ullarnærbuxur og rosa fínan bol við 😉 Óliver langar að verða bóndi og er líka klæddur  svona við hæfi! Ég gæti líka vel ímyndað mér að Óliver myndi fíla sig í sveitinni :-). Svo keyrðum við Kim og Mána í lestina. Þeir eru nú á leiðinni að heimsækja Troels með Lars. Voða huggó herraferð hjá þeim. Við hin 3 fórum og borðuðum  hjá Ane og Andreas og svo heim í bað og lúlla. Í dag fóru þau í leikskólann og ég ákvað að labba, því veðrið var svo gott. En þegar ég kom í leikskólann var allt lokað og læst… ég hafði sem sagt gleymt að þau áttu að mæta annars staðar í þessari viku 🙂 En það reddaðist – allt hægt í góðu veðri. Ég labbaði svo aftur heim, fór út að hlaupa, braut saman þvottinn og tók til. Og er núna búin að fá mér hádegismat. Svo er það víst meiri tiltekt og svo kemur vinur hans Ólivers með okkur heim, þegar ég næ í þau seinna í dag. Óliver búin að panta vöfflur og ætli við höngum ekki í garðinum. Svo notalegt að vera í fríi. Og á morgun, geri ég ráð fyrir að allt sé orðið svo fínt hér, að ég geti bara rölt í bæinn og legið úti í garði og lesið og svona huggulegheit :-).

2011-04-16 003 2011-04-17 002 2011-04-17 007 2011-04-17 008 2011-04-17 004 2011-04-16 008 2011-04-18 001

- 1 kommentar til Aaaah svo gott að vera í fríi :-)

Sommergaver

Så har hele familien været til svømning i dag. Sidste gang hos drengene til svømmeundervisning denne sæson. Jeg fik en sms, hvor der stod “tag hele familien med til sidste gang svømning” og det gjorde jeg så selvfølgelig. Det var først da jeg var hoppet ned i det kolde vand og kiggede mig omkring og så kun nogle få voksne i bassinet at det gik op for mig, at man også kunne vælge at lade være 😉 men det var nu meget hyggeligt og alle blev rene og trætte og så kørte vi på MC D og spiste aftensmad, hvilket skabte så megen glæde, at der blev uddelt kræmmere på kryds og tværs af søskendeflokken og vi blev kåret som verdens bedste familie af Óliver :-). I dag har det regnet. I går var det på den anden side skønt forår. Jeg afleverede Máni om morgenen i skole – han skulle på lejrskole, en overnatning. Store dreng. Det er gået superfint. Han nyder at være af sted. Så gik jeg i H og M efter arbejde og købte sommergaver til både børn og mand. Datteren fik nederdel og Óliver fik en fin hat. Máni fik en sommerjakke og Kim en skjorte. Jeps så opfindsom var jeg. Da jeg havde hentet Óliver og Røskva tog vi forbi Spar og fik os en is på vej hjem. Luksus på luksus. Og på det øverste billede har Røskva en vest på, som en af min mors elever syede til mig den gang jeg var en bitte lort. Lidt sjovt 🙂

2011-04-10 002 2011-04-11 001 2011-04-11 004 2011-04-11 005

- 1 kommentar til Sommergaver

Mandagsblog.

Lørdag og søndag har været fantastiske med skøøønt vejr 🙂 Lørdag deltog Máni i forårsopvisningen med gymnastikholdet. Meget flot og hyggeligt. Han er super glad for at gå til gymnastik og vil gerne fortsætte, så det er bare kanon. Óliver var over og lege hos en ven imens fordi han, som regel har lidt ondt af sig selv når han skal sidde på bænken og “bare kigge” i laaaaang tid 😉 Røskva og Kim kom og så Máni og hun nåede også at danse rundt og er selv overbevist om, at hun er en stjerne til det der gymnastik – så måske bliver vi nødt til at give hende lov til at gå på et hold efter sommerferien. 🙂 Så var det bare hjem i haven og lege og hygge og køre brænde og ja 🙂 Søndag kørte Kim 3 gange på lossepladsen med ragelse fra have og skur, ungerne legede rundt i de 3 haver sammen med naboerne, jeg løb mig en tur og så grillede vi aftensmad.Kim og Røskva var også forbi et havecenter og købte 3 bærbuske. Óliver og Røskva plantede en hindbærbusk hver og Máni en stikkelsbærbusk. Meget hyggeligt! Hurra for den dejlige forårsstemning. Nu har jeg lige afleveret Máni – han skal på tur med overnatning med sin klasse. Store dreng. Han glædede sig helt vildt 🙂 Og denne uge står ellers på sidste gang svømning for drengene i morgen, skolefest og fællesspisning på Mánis skole torsdag og så ja – nærmer påskeferien sig 🙂

2011-04-10 024 2011-04-10 015 2011-04-10 013 2011-04-10 001 2011-04-09 009 2011-04-09 019 2011-04-09 021

- 3 kommentarer til Mandagsblog.

Sunnudagsblogg!

Á laugardaginn fórum við að heimsækja Inga um borð í Goðafoss. Rosalega fallegur dagur, skemmtileg heimsókn, fiskur og flatkökur, göngutúr, kók og you name it 🙂 Vörðurinn á höfninni ætlaði ekki að hleypa okkur inn á svæðið, sagði að það mætti ekki vera með börn yngri en 7 ára. Þá sagði Ingi bara að hann væri yfirvélstjóri og við værum að koma í mat og benti svo á Röskvu og sagði að hún væri  7 ára, bara lítil eftir aldri og svo fórum við um borð! Og hana nú, ekkert vesen!. Röskva var hæst ánægð með að vera 7 ára 🙂
Besøg hos Ingi Besøg hos Ingi Besøg hos Ingi Besøg hos Ingi Besøg hos Ingi Besøg hos Ingi Besøg hos Ingi

- 5 kommentarer til Sunnudagsblogg!

Mánudagsblogg.

Á föstudaginn fór ég til Köben og út að borða með Ingu, Ragnheiði og Elísabetu 🙂 Í tilfefni afmælis Ragnheiðar. Rosalega huggó og brilliant matur. Alltaf gaman að vera með fólki sem maður hefur þekkt í bráðum 27 ár. Alveg ómetanlegt 🙂

2011-03-25 001 2011-03-25 002

Svo fór ég að hitta vinnufélagana í mennigarferð á laugardeginum, líka í Köben og Inga var svo sæt að gera þessa rosalegu fínu fléttu í mig, þó hún hefði í nógu öðru að snúast.

2011-03-26 002

Sunnudagur var vordagur. Allan daginn í garðinum og svo fór frú Nike að hlaupa, í fyrsta sinn nógu hlýtt til að vera í flotta jakkanum sem ég fékk í jólagjöf. Mér finnst ég svakalega pró í þessu fína Nike dressi 🙂

2011-03-27 001

Og svo er nýtt tímabil hjá dóttur minni, sem heitir naglalakk 🙂 Sem betur fer átti ég naglalakk inn í ískáp, sem ég hafði fengið fyrir löngu. Hún var ekki alveg sátt við litinn og ég er búin að lofa henni að kaupa fjólublátt naglalakk. Og að hún megi fá göt í eyrum þegar hún verður 8 ára, en að hún verði að bíða með að lita á sér hárið fjólublátt (sem hún bað um, um daginn). Ég veit ekki alveg hvaðan daman hefur þetta, og ég er svolítið stressuð yfir því að geta ekki verið henni nægur stuðningur í pæjuskapnum 😉

2011-03-27 002 2011-03-27 003

- 4 kommentarer til Mánudagsblogg.