Auðvitað smá sunnudagsblogg.

Röskva tók pabba sinn með á svona indjánadag hjá dagmömmum í Svenborg, síðasta fimmtudag. Þau höfðu það víst bara voða huggulegt feðginin.

DSC03386 DSC03392

Í dag var “storskrald” þ.e. að við og önnur hús hérna í hverfinu, getum sett ýmislegt sorterað rusl og annað út við veginn og svo kemur stór ruslabíll á morgun og tekur það allt. Strákarnir fóru í veiðiferð um hverfið og fundu ýmsilegt, sem þeim fannst nothæft. Máni í litla skotið sinn, bak við trén – leynistaðinn og Óliver opnaði búð. Fyrst á eldhúsgólfinu, á teppinu sem hann taldi vera algerlega hreint og fínt, en sættist svo við að flytja verslunina út í skúr :)

DSC03416 DSC03417

Og svona er moster (Ragnheiður) með í stofunni sinni segir Óliver.

DSC03428 DSC03420

Haustglugginn, kastaníur og snaps í gerð :)

DSC03426

Sunnudagskvöld :)

Enn ein góð helgi að baki. Yndislegt veður og notalegheit. Krakkarnir eru í góðum gír og hér eru myndir af yngstu og elsta í nýjum afmælisgjafarfötum. Á föstudaginn var Kim að stjórna slammi, en Ane, Alma og Vigga komu í kvöld heimsókn eftir matinn. Mjög huggó.

DSC03352 DSC03356

Hoppudýnan er notuð á hverjum einasta degi.

DSC03361 DSC03360 DSC03363

Á laugardeginum fór Kim að lesa niður í bæ og við hin fjögur fórum á bókasafnið í ævintýrabingo. Það er nefnilega svona bókmenntahátíð hér í bænum og margt í gangi. Við keyptum okkur ís og löbbuðum niður í bæ, bara í smá sumarfíling. Heima var svo bara leikur og praktísk verkefni, svona eins og gengur og gerist. Um kvöldið fórum við Kim svo út að borða og að hlusta á upplestur. Fengum rosa góðan indverskan mat. MMM. Og í dag fórum við í sund og svo var verið að vinna í garðinum og Kim að leggja flísar.

DSC03370

Óliver að smíða.

DSC03374

Og Máni að leika við Anton.

DSC03377

Ég og Lone nágranni keyrðum svo í fitness…. en það var lokað. ÆI. Jæja, góðar stundir.

Ferðamál :)

Nú nú, fólk er alltaf að ræða við mig um landið mitt fagra, kreppuna og annað gott. Og stundum er fólk að biðja um hjálp eða ráð eða þ.h. :)

Einn samstarfsfélagi minn er að fara til íslands í sumar í viku, eða 10 daga og langar að annaðhvort skifta á húsnæði eða leigja af einhverjum. Er einhver til í þetta? Þau búa í fínu húsi á Thurø sem er yndislegur hluti af Svendborg. Tíminn skiftir ekki öllu máli, en einhvern tíman í sumarfríi kennara hér, sem er lok júní og fram til 10.ágúst ca.

Svo er annar sem ég þekki, sem er með veiðidellu að spá í veiði á Íslandi. Ekki endilega lax… en eitthvað sem er ekki svo dýrt að bara bill Clinton getur farið að veiða. Veit einhver eitthvað um þetta?

Og ég farin að kúra á föstudagskvöldi :-) góða nótt.

Sumarbústaðarhelgi

Kim fór með öll börnin fimmtudag og hitti Jeppe, með sín börn og Lars í sumarbústað sem þeir fengu lánaðan. Yndislegur staður og stutt niður á strönd. Hafið bláa hafið :) . Ég, Anna og Troels komum svo á föstudeginum. Var ekki alveg nógu dugleg að taka myndir en hér eru nokkrar.

Óliver að kenna litlu dömunum prumpuhljóð :)

DSC03266

Fórum að veiða krabba á laugardeginum og það er eitt af því besta sem ég veit. Rosalega skemmtilegt. Skil samt ekki alveg af hverju ég er svona æst í þetta :)

DSC03276

Röskva var rosalega ánægð með Troels alla helgina og var mikill klíningur, sem var notalegt fyrir þau bæði.

DSC03285 DSC03283 DSC03287

Á leið á ströndina á meðan bræðurnir þrífa bústaðinn.

DSC03304

Og Máni er mikill náttúruáhugamaður. Elskar ber, að skoða sveppi og finna dýr. Hann fann þessa fínu lirfu.

DSC03307 DSC03311 DSC03312

Liva, Asta, bedstefar, Röskva, Máni og Óliver.

DSC03320 DSC03340 DSC03319