Jæja, þá er Janúar almennilega komin í gang. Óliver var lasin í vikunni. Var heima með pabba þriðjudag og mömmu miðvikudag. Við bökuðum þessar fínu kökur
Svo erum við búin að pakka öllu dótinu í stofunni uppi í kasse og setja á mitt gólfið og gera klárt til að við getum málað stofuna uppi. Hún á að vera hvít. Það byrjaði eiginlega þannig að þegar við komum heim eftir jólafríið og tókum jólatréð niður, þá langaði okkur ekkert að koma stofunni í samt horf aftur, því teppið er orðið svo mjög ógðslegt. Og er hægt að skifta á gólfinu án þess að mála veggina fyrst? Ég bara spyr? Nei það er mjög mjög óskynsamlegt.
Þess vegna erum við núna með litla stofu hérna niðri og Kim er búin að færa tölvuna sína inn í gestaherbergið. Og svo er meiningin að þetta eigi ekki að stressa okkur neitt svakalega en bara vera svona verkefni sem við getum gripið í öðru hverju
. Nú þurfum við bara að panta málinguna og svo er allt klárt til að koma sér í gang.
Hér er ungfrúin að spila við mömmu sína. Hún er í miklu spilastuði þessa dagana. Hún er er SVINDL meistari aldarinnar. Ef maður spilar spil, þar sem á að kasta tening, þá getur hún haldið því fram að þegar kemur að henni megi hún gera tvisvar og þannig séu reglurnar. Og hún er meistari í að leggja teninginn niður á borðið, þannig að sú hlið er upp, sem hana ákkúrat vantar. Og ef ég vinn t.d. lotto sem við erum að spila hér á myndinni, þá flýtir hún sér að klára sitt spjald og þá unnum við báðar. Mjög hentugt
Ég skemmti mér mjög vel við þessa iðju með dóttur minni og mér er hugsað til sumra systkina minna í leiðinni… nefni engin nöfn
. Og NEI HÚN HEFUR ÞETTA SKO EKKI FRÁ MÉR
ha ha.
Strákarnir eru í góðum gír. Skólamál Mána eru að skýrast. Bráðum fáum við að vita í hvaða skóla hann á að fara í haust, þar sem það á að loka skólanum hans. Óliver er bara hress nema honum finnst svona hlutir þar sem maður á t.d. að sitja í hring og spjalla og syngja í leiskólanum mjög langdregnir
Það verður spennandi fyrir hann að byrja í skóla í haust
Máni leikur og leikur við hina gaurana í bekknum, þeir gista saman um helgar og hafa það voða kósý.
Um næstu helgi förum við til Köben. Kim er að fara að keppa í DM i ljóðaslammi á föstudeginum og á laugardeginum höldum við Janúar afmæli fyrir afmælisbörn fjölskyldunnar. En Lars, Kim, Louise, Óliver og Liva eiga öll afmæli í Janúar.
Á eftir er ég að fara til Vordingborgar að heimsækja Rikke vinkonu mína og á morgun kíki ég á Stine, sem býr á sama stað. Hugguelgt.
Svo eins og sést hér er nóg um að vera á Mellemvej.
Ást og friður, Erla