Lige lidt pics inden dynerne venter…

Selveste aldershøvdingen i klanen, aka Mormor, har været forbi sammen med kvartvietnameseren og Sergenten (Lotte og Emil). Det var vi meget glade for, og de anbefalede iøvrigt varmt det lokale vndrehjem, som havde lækker morgnbuffet og fine værelser…





Óliver og Röskvas værelse samt The Lounge er indtil videre ret nøgterne og spartanske i deres udtryk – men de bevæger sig i den rigtige retning. Med Feng Shui og det hele.




Soooomer, sommer og sol:









Óliver er dejset i hedebølgen og får sig en lur under det ene af de tre æbletræer:



Og så kom David og tog sit onkel-ansvar alvorligt:


Hr og Fru Ruben Karpantschof:



Og de kære, kære gulve:





Og de forbandede, helvedes lister:


Og til sidst et billede af Helten, der tager en pause fra sømpistolen ved at lave lidt iq-nivelerende møbelsamling:


Jeg er for træt til at skrive noget særligt, men for lige at nævne noget særligt, så kommer svigerfar og kone på besøg i morgen og er i DK i en uge – og det glæder den lille familie sig rigtig meget til. Ha det rart, kærligt og varmt derude – vi ses….

Margrét Rós á afmæli :)

Vegna tæknilegs vesens (sem gerir thad lika ad verkum ad islensku stafirnir virka ekki) verdur einungis thessi mynd birt i dag af afmælisbarninu. Thetta er mynd sem eg tok af okkur vinkonunum a Laugum i ar (eftir midnætti) :) Læt fylgja mynd af frændunum i godum gir i stadinn. Máni var svekktur um daginn, thar sem hann misskildi pabba sinn og helt ad Almar og Sveinn Logi væru komnir i heimsokn. Thad verdur stud thegar thid komid. En allaveganna TIL HAMINGJU MED DAGINN, vonandi verdur dekrad vid thig.

kær kvedja fra Svendborgargenginu

Gaman

að heyra frá svona mörgum hér á síðunni :) kærar þakkir fyrir það. Og Sólrún – myndir koma seinna. Ímyndaðu þér bara eitthvað rosalega flott og það er húsið mitt. Matti – Hjálp þín væri vel þegin, en andinn hjálpar einnig. Bryndís – við söknum ykkar líka og Óliver væri sko alveg til að vera sjóræningjapabbinn í fjölskyldu þeirra Freyju. Sólveig – við söknum Arnórs líka (og ykkar) og vorum einmitt að tala um hann í dag þegar við fylltum buslulaugin af vatni að hann myndi hafa það huggulegt í garðinum okkar. Mamma og Ragnheiður – góða skemmtun á skátamótinu.

Og svo að færslu dagsins. Í dag er ég 5 ára og mig langar heim. Eða kannski er ég 14 ára og langar að liggja upp í sófa alla nóttina og horfa á vidéó og fara á fætur um hádegi. Eða eitthvað. Allaveganna er ég alveg með nóg af þessum blessaða fullorðinsleik í dag og skil ekki hver fann þennan leik upp. Verkaskipting heimilisins er í grófum dráttum að ég passa ungana á meðan Kim vinnur í húsinu. Við erum bæði orðin smá þreytt á þessari verkaskiftingu. En… Kim er hörku duglegur og hefur fengið frábæra hjálp hjá Troels svo hér er það sem hefur verið gert niðri.

Altt málað. Loft og veggir. Allt hvítt til að byrja með. Búið að leggja nýtt trégólf í svefnherbergið, stigaganginn, ganginn, skrifstofuna og samverustofuna. Búið að leggja laminatgrasgólf á gólfið í barnaherberginu. Búið að mála fleiri metra af listum og setja í barnaherbergið og samverustofuna.

Svo er einnig búið að saga í sandkassa. Kaupa húsgögn. Setja saman fataskápa barnanna. Kaupa, kaupa, kaupa. Búið að laga aðeins í garðinum og slá grasið tvisvar.

Og við ungarnir höfum hjólað, farið í göngutúra, farið í dýragarðinn í Odense, farið á ströndina og svona sitt lítið af hverju.

Og planið er að setja lista í svefniherbergið á morgun og flytja niður með rúmin og koma okkur fyrir niðri. Því að þegar það er gert getum við byrjað á þeim 2 herbergjum sem eru hér uppi. Og þegar þau eru búin, er smá pása. Við bíðum algerlega með stofuna. Þangað til einhvern tíman og einhvern tíman.

Ungarnir byrja í aðlögun í lok næstu viku, nema Máni má byrja að mæta aðeins á frístundaheimilið á morgun. Og svo byrjar vinnan hjá okkur ekki löngu eftir. Það verður nú líklegast bara ágætt að komast í rútínuna.

Svo það er kannski skiljanlegt að maður verði örlítið lúin öðru hverju og langi að Mary Poppins komi og bjargi málunum. En að mestu leyti gengur bara allt mjög vel og við erum mjög ánægð með húsið. Mér finnst skrýtið að búa aftur í Danmörku og þó að ég hafi búið hér áður er þetta undarleg tilfinning. En við höfum líka haft gesti Frank og Louise komu í mat síðasta miðvikudag og í gær komu David og Stine í mat, svo það er huggulegt að fólk skuli kíkja á okkur hér.

Og svo var ég aðeins of fljót á mér að tilkynna að Röskva væri farin að sofa alla nóttina, þetta voru greinilega bara nokkrar nætur, svo núna vill hún aftur pela. Oh. En hún er farin að standa alveg óstudd og æfir sig stöðugt í að ganga. Við erum að spá í að reyna að finna upp vél sem getur gengið um með hana, þar sem við erum að verða hokin af of miklum gönguferðum :)

Óliver æfir sig stöðugt í dönskunni og spyr og spyr. Hann talar eins og góður innflytjandi og er algerlega ófeimin. T.d. þegar við erum á róló talar hann við alla, bæði börn og fullorðna og blandar bara íslensku inn á milli. Hann á eftir að læra þetta fljótt litli gaurinn. Og af klósettmálum er það helst í fréttum að hann kúkaði á gólfið í dag og bað um pappír til að taka það upp… ha ha mmmmmm.

Máni er farin að hlakka mikið til að fara í skólann. Hann er farin að fá vasapening einu sinni í viku 2 sinnum aldur hans, þ.e. 10 kr. sem svo hækka 9.sept. En honum finnst hann geta keypt heldur lítið fyrir 10 kr. og er ekki alveg sáttur við þetta fyrirkomulag. Við erum að reyna að ræða við hann að safna….. en þegar hann fer með okkur í rauða kross búðina freistast hann oft til að kaupa eitthvað dót, sem kostar aldrei meira en 10 kr. og þá er erfitt að safna.

jæja, þetta er víst orðin mikil langloka og klukkan orðin 22:26 hér. Við hliðina á mér situr gaur, sem læddist niður fyrir hálftíma síðan og vill núna láta mömmu lesa fyrir sig aftur, þó svo að stjörnar séu komnar á himininn. Svo við kveðjum núna úr græna sófanum.

Nei, eitt enn. Ég gleymdi víst alveg að segja ykkur frá því að við tókum okkur smá vinnupásu í dag og fórum öll saman niður á bryggju að veiða krabba. Máni spurði 4 sinnum “eru allir að fara með?”. Veit ekki hvort svona krabbaveiði er danskt fyrirbæri, en maður tekur spítu, bindur í hana band með klemmu á endanum. Setur pylsu í klemmuna og er svo tilbúin með háf þegar krabbinn bítur á. Við veiddum 10 krabba í fötu og slepptum þeim svo.

Bless, Erla og (Óliver).

hvað er títt

Væri gaman að heyra í sem flestum hér á síðunni, eða á erlaorama@gmail.com :)

Hér er allt á fullu. Röskva er á sínu smá krefjandi skeiði. Hún vill ganga öllum stundum og vill helst hafa 2 fingur að halda í við þá iðju, því fingurnir láta betur að stjórn en vagninn sem keyptur var handa henni til gönguæfinga. Hún er farin að sofa alla nóttina og fær því bara einn pela á kvöldin áður en hún fer að sofa. Hún er sem sagt að verða stór, enda eins gott þar sem hún byrjar hjá dagmömmu bráðlega.

Máni fékk skólatöskuna sína í gær og ég ætla hérmeð að vara ykkur við. Taska sem hér kostar 299 kr. danskar, kostar tæpar 13.000 kr. íslenskar í Eymundsson. Og þetta eru ekki ýkjur.

Óliver er að æfa sig að pissa og kúka í klósett og til þess að auka áhugann keypti ég stigaklósett, sem sagt klósettseta með stiga, en planið er ekki alveg að slá í gegn. Hann er ekki alveg að ná því að það er frekar óeðlilegt að vera með bleyju á hans aldri. Hm. Hjálp.

Bræðurnir eru alveg að því komnir að fá nóg af hvor öðrum og verður mjög gott þegar hversdagurinn fer að rúlla og þeir fá jafnaldra að leika við hvor á sínum stað.

Kim er búin að leggja á allt gólfið niðri, á morgun koma listarnir og svo förum við að koma okkur fyrir niðri. Við erum búin að panta skápa svo fljótlega getum við farið að koma fötunum á sinn stað og minnkað bunkana hér og þar.

Og þar sem ég á erfitt með að eyða miklum peningum, þá sendi ég Kim í búðarferðir og læt mér nægja að fara í matarbúðina, því annars hugsa ég alltaf…. æi við þurfum þetta ekkert, við kaupum bara seinna eða álíka. En það er nú ýmislegt sem við þurfum í þetta stóra hús :)

Jæja, best að reyna að gera eitthvað af viti. Sakna ykkar. Erla