Amma og afi farin og Anna og Jörgen líka!

Pabbi og Ingibjörg komu á þriðjudaginn, beint í eyrnabólgudótturina og lungnabólgupabbann. Þess vegna var þeim fagnað alveg sérstaklega vel, og ósofin móðirin var einstaklega glöð að fá þau í lið með sér :) . Máni var glaður að fá flatkökur og súkkulaðirúsínur :)

004

Og svo var elduð íslensk humarsúpa, sem ég fékk með mér í nesti daginn eftir. Svo það var íslenskt mont í hádeginu. Fína prjónapilsið frá mömmu og svo íslensk humarsúpa :)

010 011

Á miðvikudeginum voru allir heima, nema við Máni. Og á fimmtudeginum var 5 ára gaurinn vakinn með pökkum, fánum og söng.

023

Ég hafði tekið mér frí þennan dag og strákarnir í Ólivers hópi komu í afmæli með leikskólakennararnum þeirra frá 10 til 13.

042

Og við fórum út að finna blöðrur.

056 058 076

Og eftir pizzuna fengu þeir nammipoka og horfðu á vitlausu karlana.

101

Svo kom afi Lars líka í heimsókn.

113

Og um kvöldið fóru Kim, pabbi og Lars til Odense, þar sem Kim var að keppa í slammi.

Á föstudeginum bauð Lars okkur svo út að borða – Kim komst ekki með og Máni vildi frekar vera í skólanum, svo við vorum 6. Fengum fínan hádegismat á Börsen. Um kvöldið var auðvitað disney og hugga.

Á laugardeginum fórum við í göngutúr með sleða og á bókasafnið. Svo fór ég ein niður í bæ að hitta pabba og Ingibjörgu. Þau keyptu handa mér þennan fína Römertoph pott, svo núna á ég eftir að elda svo mikið og hollt að engin getur trúað því :) . Gaman að því. Svo var eldað læri með tilheyrandi og ís í eftirrétt. Alger veisla. Í morgun fóru svo amman og afinn og það er aldrei gaman að kveðja. æi. Um þrjúleytið komu Anna, Jörgen, Tómas og Marta í heimsókn og þá var farið í sleðaferð, drukkið kaffi og borðað chili con carne. Rosalega gaman að þau skildu nenna að drífa sig. :)

Jæja, fleiri myndir seinna. Góðan sunnudag.

This entry was posted in Billeder / Myndir, Erlas blog. Bookmark the permalink.

One Response to Amma og afi farin og Anna og Jörgen líka!

  1. Sólveig says:

    huggó, var að skoða myndirnar af ykkur með Arnóri og hann var alltaf að spyrja “og hvar er Arnór Breki” skildi ekkert í því að hann vantaði á myndirnar :) En hann veit að afi og amma fóru langt í burtu til að hitta ykkur. Takk fyrir flíkurnar af Röskvu :) Iðunn er að hressast farin að brosa aftur og reyna að rífa í hárið á mér og veikindalausi mánuðurinn byrjar á mrogun, húrra!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>