Gott veður

Nú er góða veðrið komið, svona næstum því­ á hverjum degi og við gætum allt eins leigt herbergið hans Mána út….. hann er úti allan daginn og fram á kvøld. í gær høfðu hann, Gry og Freja það huggulegt við varðeldinn og ég dró hann inn um 20:45 leytið. í dag komu allir krakkarnir hjá dagmømmunni að heimsækja okkur, það vakti mikla lukku og Máni var stoltur af að geta leikið með þeim í­ nýja sandinum (sem stóra grafan kom með) og spilað fótbolta. Þegar krakkarnir voru farin, fengum við okkur hádegismat og fórum svo og pløntuðum salati í­ box til að gera klárt fyrir matjurtargarðinn. Mána fannst skemmtilegast að skola á sér hendurnar með vatni úr “vøkvunarkønnunni”. Annars ér það að frétta að nú eru umræður hér heima hjá okkur um að e.t.v. reyna að selja allan staðinn okkar. Svo það eru spennandi/stressandi tí­mar framundan. Máni hættir hjá dagmømmunni í­ lok maí­ og við erum að í­huga skí­rn í­ byrjun júni. Jæja, Óliver er vaknaður. Bless í­ bili.

- Ingen kommentarer til Gott veður

Aftur í­ sveitinni

Jæja, þá er fjølskyldan komin aftur í­ sveitina og við erum svona ca. að lenda 🙂 Við þøkkum kærlega fyrir samveruna á íslandi og søknum ykkar afar mikið. Eins og venjulega náðum við ekki að hitta alla sem við viljum, en vonandi sjáum við fólk bara aftur bráðum. Máni er ennþá alltaf úti að leika sér, það eru hans ær og kýr. Hann svaf nu frá 19:15 – 09:15 næsta morgun, frá sunnudegi til mánudags þegar við komum heim. Svo hann var heima hjá mømmu og Óliver þann daginn. í dag fannst honum voða gaman ad komast aftur til dagmømmunnar, hennar Helle og hitta vini sí­na og þá sérstaklega Jakob, sem hafði saknað hans mikið. Þegar ég sótti hann, sagði hann bara “mamma du ikke tage mig”. Hann hresstist þó þegar hann kom heim og gat farið út að leika sér þar. 퀰g er í­ tiltekt, er að taka í­ gegn allt loftið hjá okkur og pakka niður almennilega og henda. Við høfum aldrei almennilega tekið upp úr øllum køssunum sí­ðan við fluttum. Kim er byrjaður að vinna og Óliver stækkar og dafnar, brosir mikið og hjalar. Hjúkkan kemur á mánudaginn, svo þá verður hann strokinn og fí­nn. Jæja, best að fara að skrí­ða í­ bólið, góða nótt, Erla

- 9 kommentarer til Aftur í­ sveitinni