Dóttirin 1 árs – dúllan!

Hún er yndisleg. Hún rokkar þegar hún heyrir tónlist. Hún hefur mikið skap og er þrjósk á við fimm. Hún elskar eplin í garðinum. Hún elskar sandkassa, bleytu, vatn og drullu. Hún fílar sig vel hjá dagmömmunni. Hún rífst við bræður sína. Hún skellihlær. Hún labbar um eins og herforingi. Henni finnst gaman í göngutúr. Hún hefur farið 7 sinnum í flugvél. Hún fer það sem hún ætlar sér. Hún er byrjuð að klifra upp á húsgögn. Hún elskar stiga. Hún er sæt eins og sólin.

Nå, far vil ofgså lige skrive lidt, i et rent anfald af inspiration over din mors søde ord. For du er jo dejlig med krøllede lyse hår og dit bestemte temperament. Du headbanger mildt når en tone strejfer dit øre, du mener at Newtons love kun er blevet skrevet for at du kan udfordre dem, du flækker højt af grin hver gang Máni bestemmer sig for at underholde dig, du kan lave “Give me five”, du spiser æbler som en fynbo, og du har vraltet rundt siden du var 10½ måned. Din dagplejemor er superglad for dig og du kan næsten endda styre Óliver – og det kræver alligevel sin kvinde. Så tillykke med dit første år min pige, du er skøn og fantastisk…

- 9 kommentarer til Dóttirin 1 árs – dúllan!

Kristján Þórbergur 1 árs :)

Innilega til hamingju með daginn minn kæri tengdasonur og vinur 🙂

Leiðinlegt að ég sé ekki búin að senda þér gjöf, en huggun harmi gegn er kannski að dóttir mín fær heldur enga gjöf frá mér á morgun, svo eitt gengur yfir alla. Styrmir hefur heldur ekki verið það heppin að fá gjöfina á réttum tíma í þetta sinn……. Þannig að það er augljóst að hvað gjafamálin varða erum við ekki á toppnum hér á Mellemvej…. 🙂

En allaveganna, vonum við að það hafi verið dekrað við þig og kökurnar hafi bragðast vel. Knús frá okkur 5 og þá sérstaklega frá fröken Rösvku.

- Ingen kommentarer til Kristján Þórbergur 1 árs :)

Laugardagur hjá frú fjörugri :)

eða þannig…

Skrapp í Rauða kross búðina með Óliver. Fann mér stól í herbergið mitt. Hann kemur á þriðjudaginn (vonandi kemst hann inn um dyrnar). Óliver fann sér forláta spidermann bíl, risastóran á þremur dekkjum… :). Svo fóru Kim og Óliver af stað til köben, þar sem Kim ætlaði í sumarveislu og Óliver að gista hjá frænkum sínum. Honum fannst það nú ekki leiðinlegt. En eftir urðum við þrjú.

Við Máni settum niður nokkra blómalauka í garðinn á meðan Röskva svaf. Svo skruppum við þrjú í sund, þrátt fyrir sólskil og blíðu, eitthvað urðum við að gera hressandi…. og þegar heim kom, var það sláttur og smá tiltekt. Máni í leik við nágrannanna og Röskva í þreytukasti án þess þó að vilja leggja sig. Eftir matinn (hafragrautur handa Rösvku, haframjöl með mjólk og sykri handa Mána) hvíldi Máni sig, Röskva fór að sofa og ég hófst handa.

Sem sagt. Að taka upp úr kössum, nú eru ekki margir kassar eftir úti í skúr. En samt einhverjir. Og núna er herbergið mitt að fá á sig huggulegan brag. Mér fannst ég vera tólf ára, þegar ég var að tína eitt og annað uppr úr kössum, sem hafa ekki verið opnaðir síðan ég bjó ein í herbergi á Nörrebro :).

Ætlaði að setja inn myndir, en finn ekki snúruna og Kim ekki heima. Set þær inn á morgun. Jiii hvað það er gaman að vera med skrifstofu. Og eigið herbergi. YES.

Góðar stundir, Erla

- 2 kommentarer til Laugardagur hjá frú fjörugri :)

Gott skipulag

er algerlega nauðsynlegt þessa dagana…. ég var að koma heim, fór í Pilates tíma með nágrannanum. Mjög fínt, en auðvitað ekkert – alls ekkert í líkingu við íslenskt world class. Ísland best í heimi.

En ballið byrjaði sem sagt í síðustu viku og stendur yfir nokkrar vikur.

Foreldrafundur í vinnunni hjá Erlu. Foreldrafundur í bekknum hans Mána (mamman skráir sig í foreldrafélagið í stjórn). Foreldrafundur í vinnunni hjá Kim. Foreldrafundur í vinnunni hjá Erlu. Foreldrafundur hjá dagmömmunum. Foreldrafundur í leikskólanum (komumst ekki því það er á sama tíma og hjá dagmömmunum). Foreldrafundur á frístundaheimilinu. Foreldraráðsfundur hjá Erlu.

Þar að auki. Kaffi í leikskólanum hjá Óliver. Haustkaffi á frístundaheimilinu hans Mána. Skólahátíð í skólanum hjá Erlu. Vinnupartý hjá Erlu.

Og… svo langar Kim að vera í blaki, mér í Pilates, Mána í fótbolta og Óliver í tónlistarskóla :). Við erum að raða þessu öllu saman og finna bestu lausnina :).

… og ekki er allt búið enn. Á laugardaginn er Kim að fara í partý í Köben. 6.sept. höldum við fjölskylduafmæli fyrir Rösvku og Mána. 9. sept. bíður Máni öllum bekknum heim í afmæli.

Svo það er allt á fullu og við tjékkum google kalander oft á dag … 🙂

Jæja verð að fara að smyrja nesti. Búin að baka köku til að taka með í vinnuna, er með í svona miðvikudagsklúbbi í vinnunni, þar sem maður skiftist á að taka með. Gott að vera búin að því.

Góða nótt. Frú Erla

- 3 kommentarer til Gott skipulag

Meiri skóli

Máni skólastrákur þegar hann fór í skólann þriðjudag. 🙂 Þegar ég sá þessar myndir fór ég í H og M og keypti föt sem passa á hann. Fannst hann eiga skilið að eiga fín skólaföt svona fyrsta árið, sem passa á hann og geyma erfðagóssið þangað til hann stækkar aðeins meira. Annars erum við svo heppin að hann erfir svo mikið af fötum (eins og mamman líka), en núna mátti ég til að splæsa á gaurinn, sem var mjög sæll með kaup móður sinnar.

Mér finnst mjög skrýtið að hann sé orðin svona stór og mér finnst mjög erfitt að sleppa honum svona lausum í hörkulegum heimi skólavistarinnar. 🙂 Vonandi plummar han sig vel og vonandi er engin sem stríðir honum… en ég hef haft tendensa til að vera “hræðilega mamman” og ætlað að hringja í kennarann á hverju kvöldi… “hann borðar ekki nestið sitt”, “hann sagði mér að sumir kalli hann Magnus, geturðu ekki æft með börnunum nafnið hans”…. “Máni sagði að þau hefðu fengið gos í skólatímanum, finnst þér það við hæfi?”. En ég hef hamið mig.. 🙂 ha ha sem betur fer fyrir Mána greyið. (Og kennarann). Allaveganna er hann mjög sæll og glaður með sitt. En mjög mjög þreyttur þegar hann kemur heim.

Óliver er farin að hafa það gott á leikskólanum, leggur sig eftir hádegi og vildi ekki koma með heim í dag, þar sem hann var of önnum kafin við að leika sér. Hann er þó mjög hress hér heima eftir leikskólann, svo hann vantar greinilega smá útrás og athygli – kannski af því að hann getur ekki sagt svo margar sögur og bullað á dönsku. En hann stendur sig vel hér heima í bullinu og kröfunum 🙂 Við matarborðið í gær sagði hann:

“manstu þegar Arnór gubbaði, svona hvítt gubb, það var eins og fuglakúkur”

“ég get ekki átt pabba bangsa, ég get ekki átt Röskvu bangsa, ég get ekki átt Mána bangsa, ég get ekki átt mömmu bangsa….. ég verð að fá svona bangsa úr vél” þessu kommenti verður að fylgja, að það eina sem amma og afi bönnuðu gaurnum í ferðinni hér var að reyna að veiða svona bangsa í vél og hann nefnir þennan bangsa oft 🙂 mjög óréttlátt greinilega… ha ha. En hann talar líka mikið um Kong Fu panda myndina, sem þau buðu honum á – svo það er margt eftirminnilegt.

Í kvöld komu Frank, Louise og Albert í mat. Frank er gamall vinur hans Kim frá Köben og Louise er konan hans og Albert er 4 ára gaur. Óliver fílar Frank í botn og elskar þegar þau koma. Við ætlum að borða saman á miðvikudögum til skiftis hér og þar.

Húsmóðir heimilisins er með eindæmum hress og þó að hún hafi vaknað klukkan 6, skilað börnum, farið að vinna, skroppið í H og M, komið við heima og gengið frá þvotti, sótt börn og svoleiðis bakaði hún líka súkkulaðiköku… sko mína 🙂 Hvar endar þetta? En núna ætla ég upp í stofu, kveikja á sjónvarpinu og taka til á meðan bjart er, því enn vantar ljós á efri hæðina, svona að mestu.

Hafið það gott á Íslandinu,

kær kveðja, Erla

- 6 kommentarer til Meiri skóli