Enn einn brilliant frídagur 🙂 Maður getur sko alveg vanist þessu fríi 😉 Við vorum bara heimavið til 15. Óliver fór ekki í föt fyrr en um hádegi :-). Ungfrúin vaknaði klukkan 8, fór út að tjékka á hjólinu, sem við pumpuðum í í gær. Afturdekkið mjöööög lint, en hún hjólaði á því í garðinum. Alsæl. Finnst samt vanta körfu. Mamman er samt búin að finna notað bleikt disneyhjól á netinu og ætlar að keyra við á morgun á leið til Jótlands og kíkja á það. Vona að það sé eins fínt og myndirnar sýna, því þá verður daman afar glöð :-).
Klukkan 8:15 – verið að mála. 🙂
Og Óliver nývaknaður 🙂
Svo kom Osmo í heimsókn og honum var boðið uppá ís í hengirúminu.
Við á leið í Netto og svo áfram til Christina, Jesper, Jakob og Jeppe í huggulegheit og mat. Þar var páskaeggjaleit, rosalega góður matur, sápukúlur, trampolín og strákarnir fengu líka að vera í tölvuspilum :-).
Röskva teiknaði þessa fínu mynd og Christina fékk að hengja hana á ískápinn 🙂
Og við erfðum einn poka af sumarfötu, svo nú á daman nóg af stuttbuxum og hún var súper happy með þetta. Brosti út af eyrum og fannst þetta alveg frábært. 🙂
Heim og lúlla :-). mamman sofnaði með ungunum, en er nú komin á fætur og íhugar að fara aftur í rúmið ;-). Njótið páskana.
- Ingen kommentarer til Skírdagur :-)