smá töff sko….. sko ég á ég við
Strákarnir fóru með bedstemor og Troels til Ebeltoft og við hin 3 förum ekki fyrr en á morgun, svo nú vitum við varla hvað við eigum af okkur að gera 🙂
- Ingen kommentarer til Fyrstu prufumyndirnar
…blogbogstaver fra det sydfynske
smá töff sko….. sko ég á ég við
Strákarnir fóru með bedstemor og Troels til Ebeltoft og við hin 3 förum ekki fyrr en á morgun, svo nú vitum við varla hvað við eigum af okkur að gera 🙂
- Ingen kommentarer til Fyrstu prufumyndirnarkærlega fyrir okkur öll 🙂 Allir eru svakalega glaðir með sitt. Óliver og Röskva náðu ekki að opna alla pakkana í gær, svo það var svona smá amerísk stemming hér í morgun í eftirpakkaflóðinu. Mér finnst bara eins og ég sé 12 ára aftur, get bara farið í öllu nýju í vinnuna eftir jól. Fékk alveg svakalega flottar og fínar og fullkomnar gjafir. Ein af gjöfunum mun kannski líka eiga eftir að gleðja ykkur hér á síðunni, því ég hafði óskað mér svona litla stafræna myndavél og hana fékk ég frá Kim, svo ég verð þá duglegri að bæði taka og setja inn myndir :). Við vorum mjög ánægð að fá gesti hér í gær og bedstemor, bedstefar og Troels eru hér enn. Kim og Troels eru að koma brunch á borðið. Ég sakna Íslands svakalega í dag. Kúri mig bara í jólagjafirnar frá ykkur. Strákarnir voru alveg rosalega góðir í gær. Komu mömmu sinni á óvart og voru góðir við hvern annan og Máni var svakalega yfirvegaður með pakkana og þakkaði fyrir sig og tók bara einn í einu og fannst hann mjög heppinn með allt. Þegar Óliver var farin að kvarta yfir of fáum pökkum í gærkvöldi klukkan 22 svæfði ég hann og þegar hann vaknaði í morgun, var hann rosa hress og ánægður með allt og fegin að geta opnað nokkra pakka í viðbót. Hann er samt komin með augsýkingu – en það virðist ekkert koma niður á góða skapinu. Allaveganna er ánægjulegt að sjá að þegar virkilega reynir á þá standa þeir sig rosaleg vel 🙂 Húrra fyrir þeim. Ég fór í kirkju í gær með tengdaföður mínum. Það var troðfullt út úr dyrum. Og annars borðuðum við góðan mat og risalamande og Máni fékk möndlugjöfina. Jæja – nóg í bili. Set kannski myndir í kvöld, þegar batteríið er hlaðið. Hafið það rosa gott í jólaboðunum í dag. Jóladagskveðja, frá frú Erlu
- 2 kommentarer til TakkElsku amma Bogga mín á afmæli í dag. 97 ára. Innilega til hamingju með daginn. Vildi að við gætum kíkt á þig á Skjóli :).
Annars er hér húsið að verða nokkurn vegin tekið til og þrifið – jólahreingerning hvað? Strákarnir voru rosa góðir að leika sér í allan gærdag og Röskva stjórnar hér með harðri hendi. Hún æpir og skipar fyrir og togar í strákana ef þeir hlíða ekki á stundinni. Efnileg. Troels kemur eftir smá stund, Lars í kvöld og Hella, Lotte og Emil á morgun. Svo allt er að komast í jólagírinn. Hvað ætli sé í pökkunum?
Góðar stundir
- 2 kommentarer til 97 ára – Húrra.Hér er ég, bare eitthvað að chilla með tölvunni minni eftir miðnætti. Ætlaði bara að láta ykkur vita hvað ég er töff að vera vakandi svona lengi á miðvikudegi :). 3 dagar eftir af vinnu. Húrra jólafrí. Við hjónin erum í óða önn að ljúka við verkefni í vinnunni sem best er að skila af sér fyrir jól. Og ungarnir?
Þau hafa það gott. Röskva er búin að vera á “ekki vakna á nóttunni” kúr, þar sem pabbinn þurfti að sofa uppi, því hann er með of stórt hjarta. Mamman er hinsvegar köld eins og steinn og á ekkert í vandræðum með að sofa þó stúlkan kvarti aðeins. Eins og móðirin á heldur ekki í vandræðum með að hræða son sinn svo mikið með Grýlu að hann fær væntanlega varanleg mein. Ég er byrjuð að leggja fyrir svo ég geti borgað þerapíutímana.
Máni kom niður stigann áðan og spurði mig hvort ég vildi baka sætar jólabollur. Júú ú. Ég er með uppskrift mamma. OK. Fékkstu hana í skólanum? Nei ég var að prenta hana út. Hm. Hann er bara stór. Og vildi hringja í pabba sinn, sem var út í bæ og athuga hvort hann vildi ekki örugglega baka. Það er nefnilega ekki alveg hægt að stóla á mömmuna með bollubakstur.
Óliver kúkaði í klósett í fyrsta skifti í gær. Stórum kúk. Og löngum. Og örugglega enn stærri en það ef þið spyrjið hann sjálfan. Það var mikil athöfn hér á bæ og Máni hljóp út og náði í pabba sinn, það var hringt í afann og verðlaun gefin úr afa Ísbjarnar nammikassa. Allir dáðust að flottasta kúk í heimi. Og við bíðum spennt eftir að þessi undur og stórmerki muni endurtaka sig.
Og jú – það er töff að vera vakandi lengi, en kannski ekki mjög skynsamlegt. Og á morgun er langur dagur hjá mér. Svo…. hafið það gott. Góða nótt.
- 6 kommentarer til Nýjustu fréttirVonandi verdur gaman i veislunni…. snøft ad vid komumst ekki……
- 2 kommentarer til Til hamingju amma :)Sko, á föstudeginu fór ég með Mána á jólastund í frístundaheimilinu hans og á meðan við vorum þar komu Inga og Jón í hús.
Á laugardeginum hlupum við Inga og Jón um bæinn, það er ekkert tekið rólega þegar við systur erum saman komnar. Klukkan 14 mættum við svo öll (nema J) á leikskólann hans Óliver í jólastund þar.
Og jólasveinninn kom 🙂
Fádæma gáfulegar að vanda.
Sunnudagurinn var svo jólatrésdagurinn mikli. Lagt var af stað snemma morguns með strætó til Faaborg.
Þar sem við fórum í ekta gamla gufulest að ná í tré.
Hér er stoltur eigandi stórs trés, sem svo var fraktað í barnakerru og strætó og á öxlum, heim á Mellemvej 22.
Sumir eru útkeyrðir… hvar er Óliver?
Komið heim í huggu, hvíld og hlýju.
Jamm, svona var nú þessi jólahelgi. Að ógleymdri spilamennsku og ölsmökkun.
Og við erum þvílíkt heppin að fá svona góðar sendingar frá Íslandi, ekki bar fólk heldur líka fisk, hangikjöt, læri, nammi, konfekt og hvað eina. Kærar þakkir fyrir.
Hvað uppeldi líður, þá er móðirin búin að gefast upp og farin að nota grýlu sem uppeldisaðferð. Núna veit Óliver að Grýla étur óþekk börn. Hún setur þau í pott, með sjóðandi vatni og gulrótum og kartöflum og étur þau. Og hana nú. Og kannski er það þess vegna sem hann skríður upp í á nóttunni :).
jæja góða nótt í bili.
- 3 kommentarer til Jólahelgin mikla með Ingu og apavatnsprinsinumJólahelgin mikla. Mamma og Sveinn í heimsókn og má eiginlega segja að þau hafi komið með jólastemminguna með sér frá Íslandi. Mikið var það nú brilliant. Jólaljósin komin upp, jólaskrautið og kökur í dúnkum. MMM.
Og hvernig gang hlutirnir annars fyrir sig hér í þessum jólamánuði 2008? Jú ákkúrat í dag hefur dagurinn verið ok. Við erum loksins búin að taka jólamyndina í ár. Fyrir það fyrirtæki drakk mamman 1 öl, pabbinn einn stærri og Röskva borðaði kerti, svo við vorum alveg tilbúin í tuskið. Alveg örugglega frábær útkoma. Svo er fylgst med jóladagatalinu klukkan 19:30 áður en þreyttir hausar leggjast á koddann. Íslensku jólasveinarnir ætla svo að leggja leið sína hér um og setja í skóinn hjá systkinunum, svo það verður eflaust mikill spenningur í kringum það.
Og jú, ég er þakklát. Og afar þakklát. Fyrir okkar góðu heilsu og fyrir allt það sem maður getur verið þakklátur fyrir. Samt sem áður er ég að kafna í hversdegi núna. Óliver er búin að taka þvílík tryllingsköst á hverjum degi í u.þ.b. 3 vikur og samkomulag bræðranna hefur verið betra, svo ég segi það nú bara milt. Það er því stundum ansi mikið álag að vera heima á milli 16 og 19:30 á meðan allir eru vakandi og í stuði. Ég veit ekki hvað Óliver er að ganga í gegnum, en ég vona að því fari að ljúka. (Ráð óskast ekki). En þessi skrýtna stemming, gerir það að verkum að ég hálf kvíði fyrir jólafríinu. 2 vikur. Allir saman gaman. Uss. Verður spennandi að sjá. En það er stundum ágætis hvíld að fara í vinnuna. 🙂
Jæja nóg af kvarti og nóg að gera, svo ég sný mér að næsta verkefni.
Góðar stundir.
- 4 kommentarer til jól jól