Jæja, í dag er búið að vera rólegheitardagur. Máni var hjá Anton allan daginn og fór með honum og pabba hans í bíó. Við hin skruppum í rauða kross búðina og fengum okkur göngutúr í góða veðrinu. Svo erum við búin að hengja upp snaga og taka til í útifötum og skóm og svoleiðis og auðvitað þvo nokkrar vélar. Nú er ég á leið í bælið með fyrstu jólabókina í ár. Fékk Skaparann sendan frá Ragnheiði og hlakka til að lesa. Og eitt enn – miklvægt NÚ BREYTIS Í VETRARTÍMA. Svo þegar klukkan á Íslandi er 19 er hún 20 hér. Góða nótt í bili.
Svendborg
Skólinn minn
- 5 kommentarer til Myndir frá moster :)
Vá hvað Röskva er orðin stór!!!!! Og Óliver sæt kisa. Og þú komin með sítt hár og frekar ljóst. Hvurslags. Allt bara breytt. Eins gott að ég kem bráðum í heimsókn til að fylgjast með þessu.
Er þetta sama Röskva, allt í einu orðin svo stór.
Nú styttist óðum í að við komum.
kveðja amma, mamma, tengdó
fín börn 🙂 Arnór var að segja mér að þið megið koma og gista hjá honum í herberginu hans ef þið viljið.
Sakna ykkar.
Já það væri sko gaman. Myndi minna smá á svakalega góðar stundir sem við áttum á kollegíinu, þegar við vorum 4 í heimsókn í litlu íbúðinni, með stóra garðinum :). Söknum ykkar líka. Snöft.
Ekki gleyma, stóra garðinn OKKAR.