Elsku amma Ingibjörg. Innilega til hamingju með afmælið. Vonandi hefur dagurinn verið huggulegur á Spáni. Við söknum þín mikið og hlökkum til að hittast aftur. Njótið seinni helmings gönguferðarinnar. Kær kveðja frá okkur 5 á Mellemvej.
Ellismellurinn ég
Hmmm fór yfir til nágrannanna til að biðja þau um að senda Mána heim fyrir 19:45 í kvöld og þegar ég kem segir mamman á heimilinu mér að hún og dóttirin (6 ára) séu ósammála um eitt mál og hvort ég geti svarað einni spurningu. Dóttirin heldur því fram að Kim sé stóri bróðir hans Mána. Að hann geti bara ómögulega verið pabbi hans, hans dansar og allt mögulegt, voru rökin. Mamma hennar reyndi eins og hún gat en dóttirin gaf sig ekki. Þar sem ég stend í dyragættinni finnst mér ég hafa trompið í hendi mér og spyr “finnst þér líklegt að ég sé mamma hans Kim?” og held að þannig geti stúlkan (mikil vinkona mín) áttað sig á hlutunum en hún svara blákalt “JÁ”. En þegar ég er búin að útskýra fjölskyldu okkar fyrir henni og að Kim sé mjög skrýtin og ekki eins og annað fólk, þá samþykkir hún loksins.
Svo Kim er rosa kátur með þennan misskilning… ég aftur á móti???? á ég 4 börn?…. er ég orðin kelling….
… já og nei nei nei NEI ÉG ER FYNDIN OG FJÖRUG OG SVAKALEGA UNG. Eða þannig “mamma hans Kim, ég get svo svarið það”. 🙂
- 2 kommentarer til Ellismellurinn égMáni Emtekær Linnet 6 ára
Til hamingju med afmælid Máni okkar, stóri stákur. Stóri skólastrákur. Þú ert ánægður að vera í skólanum. Þú elskar herbergið þitt með tónlist og diskókúlu, dansar eins og atvinnumaður og kennir Óliver nokkur spor í leiðinni. Í gær reyndirðu að kenna Óliver reglurnar í herberginu þínu. Ef maður öskrar þrisvar á maður að fara út. Ef maður stríðir eða gerir eitthvað vont við einhvern annan þrisvar á maður að fara út. Veit ekki hvort Óliver á eftir að hlíða :). Þú ert yfirleitt góður við systkini þín, þó að þú fáir nú bíting öðru hverju og þú getir skemmt þér við að stríða Óliver. Þú elskar íþróttir, blak, fimleika og fótbolta. Þú elskar að hreyfa þig. Þú ert mikill keppnismaður. Núna eru mamma og pabbi að undirbúa partýið, þar sem allur bekkurinn kemur heim. Vonandi verður stuð. Utan á ertu líkur pabba þínum og inní ertu líkur mömmu þinni.
- 7 kommentarer til Máni Emtekær Linnet 6 áraMerki um að Erla sé að verða fullorðin – kannski
- Erla á hús
- Erla er gift
- Erla á 3 börn
- Erla er kennari
- Erla á garð
- Erla er “í áskrift” í fitness centri
- Erla er búin að ráða barnapíu, sem hefur passað tvisvar
- Erla var á fundi
- Erla “surfer” ekki á netinu, en notar bara meil, netbanka og smá blogg
- Erla les auglýsingabæklinga á klósettinu
- Erla fer oftast snemma að sofa
- Erla getur næstum ekki verið vakandi eftir miðnætti
- Erla er alltaf að flýta sér
- Erlu finnst hún aldrei gera hlutina nógu vel
- Erla gengur með 3 hringa dags daglega
- Erla þarf að tjékka google meil til að vita hvað Kim er að gera
Fleira væntanlegt.
- 5 kommentarer til Merki um að Erla sé að verða fullorðin – kannskiTil hamingju afi ísbjörn :)
Við sendum okkar bestu óskir á afmælisdaginn og vonum að það verði dekrað við þig. Vildum að við gætum kíkt við í garðinn og kaffi. Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn. Kærar kveðjur frá Mána skólastrák, Óliver vinnumanni, Röskvu ráðskonu, Erlu mömmulitlu og Kim kúnstner.
- 2 kommentarer til Til hamingju afi ísbjörn :)Röskva segir TAKK
Kærar þakkir fyrir allar fínu gjafirnar 🙂 Rosa sætt allt saman. Hér er ungfrúin á leið til dagmömmunar. Hún fór með bollur í poka og einn lítinn poka af fánum, svo þau gætu haldið smá partý…. og já eitt kerti :).
Svo þegar hún kom heim mátti hún opna alla pakkana. Um kvöldið fékk hún hamborgarahrygg í matinn, sem hún greinilega fílar í botn.
- 5 kommentarer til Röskva segir TAKKDóttirin 1 árs – dúllan!
Hún er yndisleg. Hún rokkar þegar hún heyrir tónlist. Hún hefur mikið skap og er þrjósk á við fimm. Hún elskar eplin í garðinum. Hún elskar sandkassa, bleytu, vatn og drullu. Hún fílar sig vel hjá dagmömmunni. Hún rífst við bræður sína. Hún skellihlær. Hún labbar um eins og herforingi. Henni finnst gaman í göngutúr. Hún hefur farið 7 sinnum í flugvél. Hún fer það sem hún ætlar sér. Hún er byrjuð að klifra upp á húsgögn. Hún elskar stiga. Hún er sæt eins og sólin.
Nå, far vil ofgså lige skrive lidt, i et rent anfald af inspiration over din mors søde ord. For du er jo dejlig med krøllede lyse hår og dit bestemte temperament. Du headbanger mildt når en tone strejfer dit øre, du mener at Newtons love kun er blevet skrevet for at du kan udfordre dem, du flækker højt af grin hver gang Máni bestemmer sig for at underholde dig, du kan lave “Give me five”, du spiser æbler som en fynbo, og du har vraltet rundt siden du var 10½ måned. Din dagplejemor er superglad for dig og du kan næsten endda styre Óliver – og det kræver alligevel sin kvinde. Så tillykke med dit første år min pige, du er skøn og fantastisk…
- 9 kommentarer til Dóttirin 1 árs – dúllan!














