Jæja og hvað hefur svo á daga okkar drifið?

Jú, Kim varð númer þrjú í slamminu og komst ekki áfram. Ef hann hefði talað þremur sekúndum minn, hefði hann verið númer 2 og komist í DM. En hann var flottur í sjónvarpinu. 

Vinkona mín frá Vordingborg kom í heimsókn um helgina og það var nice. 

Strákarnir voru mjög mikið að testa mömmu sína laugardag. 

Laugardagskvöldið fór í að halda á Röskvu litlu á meðan hún ældi úr sér lifri og lungum. 

Sunnudagurinn var rólegur. Kim og drengirnir hengdu upp myndir af Múggí, því hann hvarf síðasta miðvikudag.  Mamman fór í bíó. 

Í dag var ég heima með Röskvu lösnu og Mána, sem byrjaði daginn á því að kasta upp. Seinna í dag, hringdi líka kona, sem var med Múggí heima hjá sér og búin að hafa hann síðan á miðvikudaginn. Þrátt fyrir það að hann sé með hálsband með símanúmeri. Hmm. Það var bara af því að dóttir hennar sá miðann hans Kim í skólanum og spurði hvort það væri ekki verið að leyta að kettinum sem þau væru með heima. Skrýtið fólk. En núna er Múggí komin heim og þarf aðeins að venjast því. Nú fær hann ekki að fara út næstu daga. 

Og hvað er svo á döfunni. Jú. Fundir hjá frúnni miðvikudags og fimmtudagskvöld. Kaffi hjá bekknum hans Mána (verð að baka eina skúffu). og svo kemur LILLEBROR á fimmtudaginn. Það verður gleði og gaman. 

Heimurinn batnandi fer – eða eitthvað. Góðar stundir.

- 1 kommentar til Jæja og hvað hefur svo á daga okkar drifið?

Miðvikudagurinn 5.nóvember 2008

6:30  vekjaraklukkan hringir. 

7:10 við mæðgur erum komnar í föt og ég rölti með Röskvu til dagmömmunnar. 

7:30 Við Óliver hjólum af stað og ég skila honum í leikskólann, þar sem hann sest og fær sér bollu með sultu.

7:45 ég legg hjólinu við skólann, sest inn á kennarastofu, glugga í blöðin og fæ mér kaffi.

8:00 Kenni stærðfræði í 4.bekk.

9:30 tímanum líkur og ég fer út til að vera í gæslu í frímínútunum. 

9:45 smá eigin frímínútur. 

10: 00 Kenni stærðfræði í 5.bekk.

10: 45 kenni ensku í 4.bekk. 

11:35  borð hádegismat.

11:45 fer aftur út í gæslu.

12:00 kenni aukatíma fyrir annan kennara. 

12:50 sest niður og skrifa mat um nemendur í öðrum 5.bekknum. 

13:30 fundur

14:30 annar fundur (eitt foreldri hringir og vill spjalla, ég lofa að hringja seinna).

15:15 Hjóla í ullarpeysu og regnfötum upp brekkurnar og kaupi í matinn (fer beint í frystikistuna í búðinni og kaupi tilbúnar kartöfflur, kjötbollur og reyndar lífrænt pasta). Hringi í nágrannann og spyr hvort Óliver megi bíða hjá henni í smá stund á meðan ég sæki hin. 

15:30 sæki Óliver og hjóla með hann til nágrannans. 

15:43 sæki Röskvu og hjóla með hana í frístundaheimilið til Mána og sæki hann. 

16:10 á leiðinni heim, ætla að sækja Óliver hjá nágrannanum en hann vill ekki koma heim. Í staðinn fer Máni líka í heimsókn þangað. 

Ég skrepp heim, hringi í foreldrið og gef Rösvku seríós á meðan. 

17:00 strákarnir koma heim og með Mána tveir vinir. Ég set matinn í ofninn.

17:30 þrír krakkar gráta.

17:35 við borðum

18:00 Kim kemur heim. þvottastand, náttföt, tannburstun og ungarnir komnir í rúmið 19:25. 

19:30 ég smyr nesti

Og nú sit ég hér og ætla að fara að undirbúa mig á meðan Kim er í sjónvarpsviðtali uppi í stofu. 🙂 Vonandi verða þeir búnir fyrir 20:35 þegar desperate houswifes byrjar.

- 4 kommentarer til Miðvikudagurinn 5.nóvember 2008

Til hamingju Lillebror – Vésteinn :)

 

Elsku litli bróðir minn. Til hamingju með daginn. Þó það sé að sumu leyti mér að þakka hvað þú ert frábær, þá áttu nú sjálfur mikinn heiður af… 🙂 Vonandi verður dekrað við þig. Við söknum þín og drengirnir senda kærar kveðjur til frænda. 

Klantræf på Laugar 2008

Vésteinn á góðri stundu.

Klantræf på Laugar 2008

Sjáðu hvað þú ert ánægður með mig og líður vel í návist minni … ha ha

Klantræf på Laugar 2008

áfram með parfötin. 🙂

- 3 kommentarer til Til hamingju Lillebror – Vésteinn :)

Göngutúrar og eftirmiddagslúrar

Helgi. Mmm. Í gær fórum við öll í skólann til Kim, þar sem nokkrir hressir vinnufélagar hans höfðu skipulagt matarboð. Þær höfðu keypt inn og við mættum um 15 leytið og hjálpuðums að við að gera matinn tilbúinn. Og þvílíkur matur. Rosalega brilliant. Og okkur dreymdi um að geta farið  á Ekrusmárann, Vesturgötuna og Hellulandið og fá læri/steikur og fiskibollur. Ohhhh, hvað við söknum ykkar og allra hefðanna sem við komum á á Íslandi. Og í gær var okkur sérstaklega hugsað til allra matarsamkomanna. Siðustu helgi voru það sundlaugarnar. Enn sem komið er hefur okkur verið boðið í mat fjórum sinnu, í gær meðtalið. Verðum að fara að troða okkur í mat einhversstaðar 🙂 ha ha. Ég tók svo leigubíl heim með mjög þreytta unga og kom þeim í rúmið á meðan Kim huggaði sig með vinnufélugum. Í kvöld er ég að fara í smá hitting með mínum vinnufélugum. Ég stakk upp á pool- bar eða einhverjum stað þar sem við getum farið í pílu eða eitthvað. Nenni ekki alltaf að sitja og mala. Í dag fór ég í langan göngutúr með gaurana tvo og svo fékk Röskva sér almennilegan lúr, svo við höfum bara haft það rólegt og gott í dag. 

Það gengur mjög vel í vinnunni. Skólastjórinn kom í tíma til mín á fimmtudaginn og ég er þar enn, svo….. 

Og þar sem ég var svo ánægð með matinn í gær, fór Kim strax út í búð og keypti nautasteik handa mér og er að matreiða eitthvað svakalega gott til að gleðja mig. Ekki verst það. 

Hef ekkert nennt að taka til í dag, en er búin að þvo þrjár vélar og kláraði bók í morgun á meðan strákarnir horfðu á teiknimynd og Röskva tætti úr öllum skúffum í eldhúsinu. (allt spaghettí farið til spillis :)). 

2 vikur í Ingvar Frey. 4 vikur í ömmu og afa Ísbjörn. 5 vikur í Ingu Láru og Jónda. Gæti ekki verið betra. Ji, hvað við hlökkum til að fá ykkur öll í heimsókn.

Bless í bili frá frú stinna rass

- 4 kommentarer til Göngutúrar og eftirmiddagslúrar

Myndir frá moster :)

Jæja, í dag er búið að vera rólegheitardagur. Máni var hjá Anton allan daginn og fór með honum og pabba hans í bíó. Við hin skruppum í rauða kross búðina og fengum okkur göngutúr í góða veðrinu. Svo erum við búin að hengja upp snaga og taka til í útifötum og skóm og svoleiðis og auðvitað þvo nokkrar vélar. Nú er ég á leið í bælið með fyrstu jólabókina í ár. Fékk Skaparann sendan frá Ragnheiði og hlakka til að lesa. Og eitt enn – miklvægt NÚ BREYTIS Í VETRARTÍMA. Svo þegar klukkan á Íslandi er 19 er hún 20 hér. Góða nótt í bili.

Svendborg

Skólinn minn

- 5 kommentarer til Myndir frá moster :)