Nýjustu fréttir

Hér er ég, bare eitthvað að chilla með tölvunni minni eftir miðnætti. Ætlaði bara að láta ykkur vita hvað ég er töff að vera vakandi svona lengi á miðvikudegi :). 3 dagar eftir af vinnu. Húrra jólafrí. Við hjónin erum í óða önn að ljúka við verkefni í vinnunni sem best er að skila af sér fyrir jól. Og ungarnir?

Þau hafa það gott. Röskva er búin að vera á “ekki vakna á nóttunni” kúr, þar sem pabbinn þurfti að sofa uppi, því hann er með of stórt hjarta. Mamman er hinsvegar köld eins og steinn og á ekkert í vandræðum með að sofa þó stúlkan kvarti aðeins. Eins og móðirin á heldur ekki í vandræðum með að hræða son sinn svo mikið með Grýlu að hann fær væntanlega varanleg mein. Ég er byrjuð að leggja fyrir svo ég geti borgað þerapíutímana. 

Máni kom niður stigann áðan og spurði mig hvort ég vildi baka sætar jólabollur. Júú ú. Ég er með uppskrift mamma. OK. Fékkstu hana í skólanum? Nei ég var að prenta hana út. Hm. Hann er bara stór. Og vildi hringja í pabba sinn, sem var út í bæ og athuga hvort hann vildi ekki örugglega baka. Það er nefnilega ekki alveg hægt að stóla á mömmuna með bollubakstur. 

Óliver kúkaði í klósett í fyrsta skifti í gær. Stórum kúk. Og löngum. Og örugglega enn stærri en það ef þið spyrjið hann sjálfan. Það var mikil athöfn hér á bæ og Máni hljóp út og náði í pabba sinn, það var hringt í afann og verðlaun gefin úr afa Ísbjarnar nammikassa. Allir dáðust að flottasta kúk í heimi. Og við bíðum spennt eftir að þessi undur og stórmerki muni endurtaka sig. 

Og jú – það er töff að vera vakandi lengi, en kannski ekki mjög skynsamlegt. Og á morgun er langur dagur hjá mér. Svo…. hafið það gott. Góða nótt.

- 6 kommentarer til Nýjustu fréttir

Jólahelgin mikla með Ingu og apavatnsprinsinum

Sko, á föstudeginu fór ég með Mána á jólastund í frístundaheimilinu hans og á meðan við vorum þar komu Inga og Jón í hús. 

Á laugardeginum hlupum við Inga og Jón um bæinn, það er ekkert tekið rólega þegar við systur erum saman komnar. Klukkan 14 mættum við svo öll (nema J) á leikskólann hans Óliver í jólastund þar. 

Og jólasveinninn kom 🙂 

Fádæma gáfulegar að vanda. 

Sunnudagurinn var svo jólatrésdagurinn mikli. Lagt var af stað snemma morguns með strætó til Faaborg.

Þar sem við fórum í ekta gamla gufulest að ná í tré. 

Hér er stoltur eigandi stórs trés, sem svo var fraktað í barnakerru og strætó og á öxlum, heim á Mellemvej 22. 

Sumir eru útkeyrðir… hvar er Óliver? 

Komið heim í huggu, hvíld og hlýju. 

Jamm, svona var nú þessi jólahelgi. Að ógleymdri spilamennsku og ölsmökkun. 

Og við erum þvílíkt heppin að fá svona góðar sendingar frá Íslandi, ekki bar fólk heldur líka fisk, hangikjöt, læri, nammi, konfekt og hvað eina. Kærar þakkir fyrir. 

Hvað uppeldi líður, þá er móðirin búin að gefast upp og farin að nota grýlu sem uppeldisaðferð. Núna veit Óliver að Grýla étur óþekk börn. Hún setur þau í pott, með sjóðandi vatni og gulrótum og kartöflum og étur þau. Og hana nú. Og kannski er það þess vegna sem hann skríður upp í á nóttunni :). 

jæja góða nótt í bili.

- 3 kommentarer til Jólahelgin mikla með Ingu og apavatnsprinsinum

jól jól

Jólahelgin mikla. Mamma og Sveinn í heimsókn og má eiginlega segja að þau hafi komið með jólastemminguna með sér frá Íslandi. Mikið var það nú brilliant. Jólaljósin komin upp, jólaskrautið og kökur í dúnkum. MMM.

Og hvernig gang hlutirnir annars fyrir sig hér í þessum jólamánuði 2008? Jú ákkúrat í dag hefur dagurinn verið ok. Við erum loksins búin að taka jólamyndina í ár. Fyrir það fyrirtæki drakk mamman 1 öl, pabbinn einn stærri og Röskva borðaði kerti, svo við vorum alveg tilbúin í tuskið. Alveg örugglega frábær útkoma. Svo er fylgst med jóladagatalinu klukkan 19:30 áður en þreyttir hausar leggjast á koddann. Íslensku jólasveinarnir ætla svo að leggja leið sína hér um og setja í skóinn hjá systkinunum, svo það verður eflaust mikill spenningur í kringum það.

Og jú, ég er þakklát. Og afar þakklát. Fyrir okkar góðu heilsu og fyrir allt það sem maður getur verið þakklátur fyrir. Samt sem áður er ég að kafna í hversdegi núna. Óliver er búin að taka þvílík tryllingsköst á hverjum degi í u.þ.b. 3 vikur og samkomulag bræðranna hefur verið betra, svo ég segi það nú bara milt. Það er því stundum ansi mikið álag að vera heima á milli 16 og 19:30 á meðan allir eru vakandi og í stuði. Ég veit ekki hvað Óliver er að ganga í gegnum, en ég vona að því fari að ljúka. (Ráð óskast ekki). En þessi skrýtna stemming, gerir það að verkum að ég hálf kvíði fyrir jólafríinu. 2 vikur. Allir saman gaman. Uss. Verður spennandi að sjá. En það er stundum ágætis hvíld að fara í vinnuna. 🙂

Jæja nóg af kvarti og nóg að gera, svo ég sný mér að næsta verkefni.

Góðar stundir.

- 4 kommentarer til jól jól

Ef gengur illa að ná í okkur

er hægt að prófa að hringja í danska heimasímann: 0045 – 32129160

Annars er veðrið bara yndislegt og ég er afar stolt af því að ég komst loksins í fitness centrið 🙂 Þetta var sem sagt fyrsti dagurinn í nýja lífinu með fitness alla daga 🙂 ha ha. En frábær staður og gott að komast í gang, var komin með þokkalega verki í axlirnar. 

Á morgun erum ég og samstarfskona mín búnar að skipuleggja jólahuggustund með eplaskífum og fíneríi í vinnunni – fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra. Við verðum ca. 25 fullorðnir og 25 börn. Svona er frjósemin mikil á þeim stað :). Annars fá strákarnir vini í heimsókn og svo er bara niðurtalning þangað til amma og afi ísbjörn koma. 4 dagar to go….. 

Góðar stundir

- 1 kommentar til Ef gengur illa að ná í okkur

Merkisdagur

Ungarnir komnir í ró. Búið að borða súkkulaðirúsínur og spila veiðimann. 

En dagurinn er merkilegri af annarri ástæðu. Óliver var bleyjulaus í dag. Og pissaði bara í 4 buxur eftir að hann kom heim. Og enn merkilegra. Hann kúkaði í klósettið í fyrsta sinn á ævinni. Kúkurinn var á stærð við bingókúlu. En ekki minna merkilegur fyrir vikið.

Góðar stundir 🙂

- 2 kommentarer til Merkisdagur