ferðalag

퀰g tók svoleiðis svakalega til í­ vinnuherberginu okkar í­ gær að ég gleymdi bæði að fara í­ mæðragrúppu og á stjórnarfund á leikskólanum. Svona er ég nú orðin rugluð. Svo horfðum við á góða bí­ómynd í­ nýja bí­óinu sem við erum búin að gera hér á neðri hæðinni. Voða flott og tæknilegt bí­o, það er nú munur. Máni nennir ekki lengur að vera hjá dagmømmunni. Hann vill bara ud og lege dig mamma i mánis hus. 퀰g, Máni og Óliver erum að fara til Broballe til Ullu og Tommy og Kristoffer á morgun. 퀰g er að fara að kenna bekknum hans Kristoffer i svona gestakennslu með Ullu. Svo heimsækjum við Lailu og Lukas og svo heim aftur á mánudaginn. Það verður voða notalegt að fara í­ smá frí­. Svo er fólk byrjað að senda okkur skilaboð í­ sambandi við skí­rnina. Gaman að heyra í­ fólki 🙂 Best að fara í­ bað og fara svo og sækja mána inn í­ stege, það er fest-dagur hjá honum í­ dag, skrúðganga og alles.

- Ingen kommentarer til ferðalag

sætt

inga lára var ad senda mer gamalt email, sem eg hafdi sent henni….

Eg er buin ad hitta sætasta strak i heimi, kann er æði. Hann a
gull-palliettu-jakkafot. Gæti thad verid betra???? Eg er svo skotin i honum,
ad eg er ad springa, eg er hrædd um ad verda of skotin i honum og gleypa
hann. æææææ. Hann er litill og ljoshærdur, med gleraugu. Svo er hann alger
dulla.

- Ingen kommentarer til sætt

skí­rn

Erum að senda boðskortin í­ skí­rnina hans Ólivers. í€ tli hann komist í­ skí­rnarkjólinn þegar að þar að kemur? Við hløkkum til og vonum að veðrið verði gott. 퀰g ætla að halda á honum undir skí­rn og vona bara að ég fari ekki að gráta, ég þurfti allaveganna mikið að halda aftur af mér í­ skí­rninni hans Mána. Við ætlum að bjóða fullt af fólki, lí­ka þeim á íslandi. Við vitum alveg að flestir geta ekki komið, en okkur finnst þetta kærkomið tækifæri til að láta aðeins í­ okkur heyra og kannski frétta eitthvað af þeim sem maður aldrei nær að hitta í­ þessum stuttu heimkomum. Nú er ég að pæla í­ að koma heim með drengina mí­na tvo í­ ágúst. Vonandi er einhver heima þá. 🙂
í gær vorum við með flóamarkað í­ garðinum okkar og á morgun ætlum við að planta í­ matjurtargarðinn okkar. Mundi allt í­ einu óljóst eftir mér og Sigfúsi að taka upp kartøflur á sjafnargøtunni… er það rétt munað? Góða nótt.

- 2 kommentarer til skí­rn