Nokkrar myndir

Allir í stíl 🙂

og síðasta myndin á flugvellinnum…. snöft, snöft… búhú

Og svo vorum við komin heim og krakkarnir í góðum leik. Frændi hans Kim kíkti í heimsókn með kærustuna og litlu dótturina 🙂

Verið á veiðum

Og svo þarf ég orðið að passa mig, þegar ég þvæ föt af Mána, að tæma alla vasana. Þetta var í vösunum á einum buxunum um daginn.

Komin epli á trén

Og Kim búin að grafa, þar sem við ætlum að leggja flísar og gera fínt 🙂

Á laugardaginn fór ég með Óliver og Röskvu til Kaupmannahafnar í amæli til Ástu litlu frænku.

og svo gisti Óliver hjá þeim, en við Röskva gistum hjá Ingu, Nicklas og Nóa sæta.

og fórum í göngutúr sunnudag.

Og við mæðgurnar í hitanum

- 1 kommentar til Nokkrar myndir

Komin heim til Svendborg

Jæja, miðvikudagsmorgun og ég hélt að Röskva væri algerlega komin í gírinn til að rúlla okkur inn í hversdaginn…. en nei, aldeilis ekki, því daman svaf til 8:55 og ég átti að vera komin með hana til dagmömmunar klukkan 9…. en við hringdum og létum vita og þetta hafðist allt. Hún var þó ekki mjög sátt við að vera skilin eftir, sú stutta. Þegar ég var búin að skila henni, fór ég heim og vakti Óliver sem steinsvaf :), smurði nestið og skilaði honum í leikskólann. Hann var glaður að fara af stað og þvílíkar móttökur sem hann fékk frá strákunum á deildinni hans. Þeir réðu sér ekki fyrir kæti og einn vina hans faðmaði hann og klappaði honum alveg uppúr og ofan. Mjög sætt og gaman að sjá þennan gaurahóp saman aftur.

Máni hinsvegar hefur verið að leika sér við Emmu og Anton (sem búa fyrir aftan okkur) síðan hann kom heim og fékk að gista þar í nótt. Og þau buðu honum með á ströndina í dag, svo hann fer ekki á frístundaheimilið fyrr en á morgun. Ég reikna heldur ekki með því að það verði nokkuð mál, því hann hlakkar bara til.

Við Kim ætlum í bæin og útrétta það sem aldrei er tími til að gera, þegar hversdagur fer að rúlla fyrir alvöru :). Svo kemur frændi hans Kim, konan hans og barn í heimsókn seinna í dag og ætla að gista þangað til á morgun. Huggulegt.

Annars gekk ferðin bara vel hingað heim og búið að þvo þvottinn, taka allt upp úr töskunum, versla og svona. Búið að slá garðinn, hreinsa beðið, setja upp nýja sturtustöng og búa til eldhúskrók fyrir Röskvu. Og svo erum við að spá í að fara að leggja flísar eftir að hafa séð alla þessa fínu garða á Íslandi.

Jæja, komið nóg í bili, hafið það gott í dag. Hér er þvílík sól – vona að hún sé líka að skína á Ísland 🙂 E

- 1 kommentar til Komin heim til Svendborg