laugardagur

laugardagur, ég og Stine (sem er að leigja í­búðina af claus og zenju) erum hér einar, með børn og einn hund. Kim farin til Køben að steggja bróður sinn. Máni var ekki allskostar ánægður með það. Hann saknar pabba sí­ns og tekur það að sumu leyti út á litla bróður sí­num…. en okkur tókst nú samt að eiga hér huggulegan dag og Claus sem er fyrrverandi truckdriver kom með risa bí­l sem hann er að fara að keyra til Hollands og við fengum að fara í­ smá bí­ltúr. Það bjargaði deginum. Máni var yfir sig hrifinn. Erla: ” saa kan du fortælle far at du har været ud at køre i en rigtig stor bil”. Máni: ” det er jeg glad for mamma, jeg klarer den godt”. Stine sagði að Máni væri svona týpí­skt hippa barn, berleggjaður í­ krummafóta stí­gvélum, með perlufesti sem frænkur hans á Akranesi gerðu handa honum og 25 ára gamla dúkku undir handleggnum. En… jæja best að fara að gera eitthvað skynsamlegt, fyrst synir mí­nir eru svona almennilegir að sofa báðir í­ einu 🙂
bless í­ bili.

- 6 kommentarer til laugardagur

sumarfrí­

Þá er Máni hættur hjá dagmømmunni og er bara heima hjá mømmu og Óliver eins og stendur. Hann fí­lar það í­ botn. í fyrradag borðuðum við morgunmat í­ herberginu hans og svo lá hann í­ rúminu undir sæng og las bækur í­ klukkutí­ma, søng og las fyrir Óliver þegar hann mátti vera að. Svo fórum við aðeins út og hann fékk súkkúlaði og Bambi myndina í­ pakka frá afa og ømmu á laugarlæk, svo hann horfði á bí­ó og fékk lí­ka popp áður en hann fór út að sofa. í gær þurftum við reyndar að keyra niður á høfn að kaupa mjólk og fórum í­ leiðinni niður á strønd að kasta með steinum. Máni fann 3 hjartasteina, eins og hann kallar þá. í dag horfði hann á bubbi byggir á meðan hann borðaði morgunmat og fór svo í­ langt og gott bað og fékk aftur pakka, í­ þetta sinn frá ømmu og afa á akranesi, ný bí­lanáttføt sem hann sefur í­ núna. Við fórum svo til stege að sækja Kim, sem er búin að vera í­ ferðalagi með bekknum sí­num og í­ bankann að ganga frá bí­laláninu. Keyptum aðeins inn fyrir skí­rnina og fórum svo heim að leggja okkur øll fjølskyldan. Óliver var nú ekki mikið fyrir þá hugmynd, hann var í­ allt of miklu stuði. Skellihló og hjalaði svo hátt að við Kim gátum varla talað saman. Nú eru drengirnir sofnaðir og ég ætla að fara að þrí­fa. Húrra fyrir føstudagskvøldinu mí­nu 🙂 áfram frú mamma. 🙂
og hugsa til afa sigfúsar og til hamingju með afmælið Klara. Og áfram Inga að vinna í­ lotto og koma til min.

- Ingen kommentarer til sumarfrí­