Að byrja í skóla :)

Først til Sabrina. Hvor er jeg glad for at du savner at læse mine hverdagsindlæg 🙂 og jeg har jo også lovet dig at lave lidt “forældreblogging”, så det finder jeg lige ud af… 🙂 bare ikke liiige i aften, da vi jo er 3 her der har første skoledag i morgen og Røskva skal begynde hos sin rigtige dagplejemor for første gang…. kold tyrker den hedder 7 til 15. Sådan ser vores virkelighed ud i morgen…. øv.

Nú sit ég í vinnuherberginu mínu í fyrsta sinn. Kim hefur fengið leyfi til að fá að vera hér, þangað til hann er búin að koma sér fyrir þar sem hann vill hafa vinnuaðstöðu. Ég er búin að plana hvernig þetta herbergi á að vera, en bíð aðeins með að koma mér almennilega fyrir, þangað til leigusamningurinn við Kim rennur út. Þá verður þetta mitt eigið herbergi og með fullt af fjólubláu, hillum, myndum og dóti. Húrra. Ég á aldrei eftir að gefa þetta herbergi upp á bátinn :)……

Á morgun byrjar Máni í skóla. Stóri strákurinn minn. Og við Kim líka. Og Röskva fer í fyrsta sinn til sinnar dagmömmu (sem er búin að vera í fríi) og verður þar frá 7 til 15. Prump og piss með það. En það þýðir víst ekkert að vera að væla yfir því, svona er þetta bara og þessi vika verður líklega bara strembin. Hinsvegar erum við að innfæra hversdagsrútinuna núna, svo það verður tekið hart á þvi. T.d. er búið að svæfa öll börnin og klukkan er 20:00. Þau þurfa á góðum svefni að halda, þegar svona mikið nýtt er í gangi. Og við líka, svo núna er bannað að hringja á virkum dögum eftir klukkan 22, dönskum tíma (nema smsa fyrst) og þá er klukkan 20 á Íslandi. 🙂

Svo á Ingvar Freyr bróðir minn afmæli í dag. Til hamingju með það. Húrra fyrir þér og Óliver sendir þér alveg sérstaklega góðar kveðjur. Hann talar mikið um þig og alltaf sem Ingvar Frey vin hans, “hvar er Ingvar Freyr vinur minn núna?”

Og jæja, ætli ég ætti ekki að fara að smyrja nestið, pakka í töskur, fara í bað og svona. Svo við séum tilbúin fyrir daginn stóra. Og… ætli maður þurfi svo ekki fljótlega að fara að huga eitthvað að þessari nýju vinnu… ha ha ha.

Sakna ykkar. Góða nótt. Erla

- 3 kommentarer til Að byrja í skóla :)

Bráðum hversdagur :)

jæja, langt síðan ég hef látið heyra í mér. En það er brjálað að gera. 🙂 ha ha.

Ég er að fara að vinna á morgun og hlakka bara til. Það verður ágætt að hugsa um annað en aðlögun hjá ungunum og húsið. The house. Huset. Heimilið. Jep.

Pabbi og Ingibjörg eru búin að vera hjá okkur og fara á fimmtudaginn. Og tíminn með 4 auka hendur hefur verið vel nýttur. Búið að klára herbergið hans Mána, setja alla lista, byrjað að bera inn kassa, búið að kaupa bókahillu fyrir ungana, Máni búin að fá skrifborð og tilheyrandi, byrjað að koma okkur fyrir í stofunni og í þessum skrifuðu orðum er Kim að setja upp tölvuna sína. Svo… allt í allt, gengur mjög vel. Og já var næstum búin að gleyma sandkassanum, sem er sá stærsti í hverfinu og þegar sandurinn kom í dag voru allt í einu mættir 7 vinnumaurar úr nærliggjandi húsum til að hjálpa til við að ferja sandinn.

Svo erum við búin að fara á ströndina með ömmu og afa, fara í bæinn, á Egeskov slot og í dag fóru drengirnir í bío að sjá kong fu panda.

Kim og ég nýttum einnig pössunarmöguleikann og skelltum okkur í bíó í gær og sáum batman. Og bestu meðmæli sem ég get gefið eru að ég var vakandi allan tíman. Sem sagt, fín og flott mynd.  🙂  (ég var annars viss um að ég væri að fara að borga fyrir að fá mér lúr… )

Óliver gengur vel í sínum leikskóla.

Máni er að fíla sig í botn að leika við nágrannana, hjóla og fara í SFO, þó mömmunni finnist hann stundum halda að hann sé orðin aðeins stærri (og meira cool) en hann raunverulega er.

Röskva getur nú tekið 10 skref óstudd, en hún er samt frekar kröfuhörð á að hafa fingur við höndina, skyldi henni detta í hug að þurfa að stiðja sig. Hún var hjá dagmömmu í dag í 3 tíma og gekk vel, sem er mjög gott því í gær og fyrradag, var hún ekki mjög hress með þetta fyrirkomulag. En á morgun er engin miskunn. Vinnan kallar.

Og við hér erum bara farin að hlakka til hversdagsins.

Og minni ykkur á að fara að skrifa afmælispóstkortin, því hér ber pósturinn líka út á laugardögum og hver á aftur afmæli 16.ágúst..???????

- 5 kommentarer til Bráðum hversdagur :)

Margrét Rós á afmæli :)

Vegna tæknilegs vesens (sem gerir thad lika ad verkum ad islensku stafirnir virka ekki) verdur einungis thessi mynd birt i dag af afmælisbarninu. Thetta er mynd sem eg tok af okkur vinkonunum a Laugum i ar (eftir midnætti) 🙂 Læt fylgja mynd af frændunum i godum gir i stadinn. Máni var svekktur um daginn, thar sem hann misskildi pabba sinn og helt ad Almar og Sveinn Logi væru komnir i heimsokn. Thad verdur stud thegar thid komid. En allaveganna TIL HAMINGJU MED DAGINN, vonandi verdur dekrad vid thig.

kær kvedja fra Svendborgargenginu

- 3 kommentarer til Margrét Rós á afmæli :)

Gaman

að heyra frá svona mörgum hér á síðunni 🙂 kærar þakkir fyrir það. Og Sólrún – myndir koma seinna. Ímyndaðu þér bara eitthvað rosalega flott og það er húsið mitt. Matti – Hjálp þín væri vel þegin, en andinn hjálpar einnig. Bryndís – við söknum ykkar líka og Óliver væri sko alveg til að vera sjóræningjapabbinn í fjölskyldu þeirra Freyju. Sólveig – við söknum Arnórs líka (og ykkar) og vorum einmitt að tala um hann í dag þegar við fylltum buslulaugin af vatni að hann myndi hafa það huggulegt í garðinum okkar. Mamma og Ragnheiður – góða skemmtun á skátamótinu.

Og svo að færslu dagsins. Í dag er ég 5 ára og mig langar heim. Eða kannski er ég 14 ára og langar að liggja upp í sófa alla nóttina og horfa á vidéó og fara á fætur um hádegi. Eða eitthvað. Allaveganna er ég alveg með nóg af þessum blessaða fullorðinsleik í dag og skil ekki hver fann þennan leik upp. Verkaskipting heimilisins er í grófum dráttum að ég passa ungana á meðan Kim vinnur í húsinu. Við erum bæði orðin smá þreytt á þessari verkaskiftingu. En… Kim er hörku duglegur og hefur fengið frábæra hjálp hjá Troels svo hér er það sem hefur verið gert niðri.

Altt málað. Loft og veggir. Allt hvítt til að byrja með. Búið að leggja nýtt trégólf í svefnherbergið, stigaganginn, ganginn, skrifstofuna og samverustofuna. Búið að leggja laminatgrasgólf á gólfið í barnaherberginu. Búið að mála fleiri metra af listum og setja í barnaherbergið og samverustofuna.

Svo er einnig búið að saga í sandkassa. Kaupa húsgögn. Setja saman fataskápa barnanna. Kaupa, kaupa, kaupa. Búið að laga aðeins í garðinum og slá grasið tvisvar.

Og við ungarnir höfum hjólað, farið í göngutúra, farið í dýragarðinn í Odense, farið á ströndina og svona sitt lítið af hverju.

Og planið er að setja lista í svefniherbergið á morgun og flytja niður með rúmin og koma okkur fyrir niðri. Því að þegar það er gert getum við byrjað á þeim 2 herbergjum sem eru hér uppi. Og þegar þau eru búin, er smá pása. Við bíðum algerlega með stofuna. Þangað til einhvern tíman og einhvern tíman.

Ungarnir byrja í aðlögun í lok næstu viku, nema Máni má byrja að mæta aðeins á frístundaheimilið á morgun. Og svo byrjar vinnan hjá okkur ekki löngu eftir. Það verður nú líklegast bara ágætt að komast í rútínuna.

Svo það er kannski skiljanlegt að maður verði örlítið lúin öðru hverju og langi að Mary Poppins komi og bjargi málunum. En að mestu leyti gengur bara allt mjög vel og við erum mjög ánægð með húsið. Mér finnst skrýtið að búa aftur í Danmörku og þó að ég hafi búið hér áður er þetta undarleg tilfinning. En við höfum líka haft gesti Frank og Louise komu í mat síðasta miðvikudag og í gær komu David og Stine í mat, svo það er huggulegt að fólk skuli kíkja á okkur hér.

Og svo var ég aðeins of fljót á mér að tilkynna að Röskva væri farin að sofa alla nóttina, þetta voru greinilega bara nokkrar nætur, svo núna vill hún aftur pela. Oh. En hún er farin að standa alveg óstudd og æfir sig stöðugt í að ganga. Við erum að spá í að reyna að finna upp vél sem getur gengið um með hana, þar sem við erum að verða hokin af of miklum gönguferðum 🙂

Óliver æfir sig stöðugt í dönskunni og spyr og spyr. Hann talar eins og góður innflytjandi og er algerlega ófeimin. T.d. þegar við erum á róló talar hann við alla, bæði börn og fullorðna og blandar bara íslensku inn á milli. Hann á eftir að læra þetta fljótt litli gaurinn. Og af klósettmálum er það helst í fréttum að hann kúkaði á gólfið í dag og bað um pappír til að taka það upp… ha ha mmmmmm.

Máni er farin að hlakka mikið til að fara í skólann. Hann er farin að fá vasapening einu sinni í viku 2 sinnum aldur hans, þ.e. 10 kr. sem svo hækka 9.sept. En honum finnst hann geta keypt heldur lítið fyrir 10 kr. og er ekki alveg sáttur við þetta fyrirkomulag. Við erum að reyna að ræða við hann að safna….. en þegar hann fer með okkur í rauða kross búðina freistast hann oft til að kaupa eitthvað dót, sem kostar aldrei meira en 10 kr. og þá er erfitt að safna.

jæja, þetta er víst orðin mikil langloka og klukkan orðin 22:26 hér. Við hliðina á mér situr gaur, sem læddist niður fyrir hálftíma síðan og vill núna láta mömmu lesa fyrir sig aftur, þó svo að stjörnar séu komnar á himininn. Svo við kveðjum núna úr græna sófanum.

Nei, eitt enn. Ég gleymdi víst alveg að segja ykkur frá því að við tókum okkur smá vinnupásu í dag og fórum öll saman niður á bryggju að veiða krabba. Máni spurði 4 sinnum “eru allir að fara með?”. Veit ekki hvort svona krabbaveiði er danskt fyrirbæri, en maður tekur spítu, bindur í hana band með klemmu á endanum. Setur pylsu í klemmuna og er svo tilbúin með háf þegar krabbinn bítur á. Við veiddum 10 krabba í fötu og slepptum þeim svo.

Bless, Erla og (Óliver).

- 2 kommentarer til Gaman

hvað er títt

Væri gaman að heyra í sem flestum hér á síðunni, eða á erlaorama@gmail.com 🙂

Hér er allt á fullu. Röskva er á sínu smá krefjandi skeiði. Hún vill ganga öllum stundum og vill helst hafa 2 fingur að halda í við þá iðju, því fingurnir láta betur að stjórn en vagninn sem keyptur var handa henni til gönguæfinga. Hún er farin að sofa alla nóttina og fær því bara einn pela á kvöldin áður en hún fer að sofa. Hún er sem sagt að verða stór, enda eins gott þar sem hún byrjar hjá dagmömmu bráðlega.

Máni fékk skólatöskuna sína í gær og ég ætla hérmeð að vara ykkur við. Taska sem hér kostar 299 kr. danskar, kostar tæpar 13.000 kr. íslenskar í Eymundsson. Og þetta eru ekki ýkjur.

Óliver er að æfa sig að pissa og kúka í klósett og til þess að auka áhugann keypti ég stigaklósett, sem sagt klósettseta með stiga, en planið er ekki alveg að slá í gegn. Hann er ekki alveg að ná því að það er frekar óeðlilegt að vera með bleyju á hans aldri. Hm. Hjálp.

Bræðurnir eru alveg að því komnir að fá nóg af hvor öðrum og verður mjög gott þegar hversdagurinn fer að rúlla og þeir fá jafnaldra að leika við hvor á sínum stað.

Kim er búin að leggja á allt gólfið niðri, á morgun koma listarnir og svo förum við að koma okkur fyrir niðri. Við erum búin að panta skápa svo fljótlega getum við farið að koma fötunum á sinn stað og minnkað bunkana hér og þar.

Og þar sem ég á erfitt með að eyða miklum peningum, þá sendi ég Kim í búðarferðir og læt mér nægja að fara í matarbúðina, því annars hugsa ég alltaf…. æi við þurfum þetta ekkert, við kaupum bara seinna eða álíka. En það er nú ýmislegt sem við þurfum í þetta stóra hús 🙂

Jæja, best að reyna að gera eitthvað af viti. Sakna ykkar. Erla

- 6 kommentarer til hvað er títt

Komin heim

á Mellemvej 22. Drifum okkur heim af Ölejr í gær, eftir 3 nátta tjaldútilegu. Okkur langaði að halda áfram með húsið, gólfefnið var komið, svo eftir engu að bíða. Ölejr var sniðugt. Sniðugt að vera svona í fríi saman, en maður þarf að þola að horfa á bera rassa, kúka í fötu og fara í kalt bað fyrir framan aðra. Sem og vaska upp í bölum, utandyra og auðvitað sofa í tjaldi. Flestir sofa í svefntjöldum, en við vorum með okkar eigið tjald með og það var nú aldeilis ágætt. En ég fór ekki í bað, mest út af kalda vatninu 🙂

Kim er búin að leggja gólf á krakkaherbergið hér niðri og á morgun verður svefnherbergið okkar tekið. Allt er á réttri leið. Ég var að gera ruslasorteringsstöð í einum skúrnum í dag og Máni er búin að læra að hjóla án hjálpardekkja. Svo allt gengur vel hér. Stundum hellist heimþráin yfir mann, en húsið er notalegt og ramminn fínn.

Ég var svo að panta skólatösku fyrir skólastrákinn og við þurfum víst að fara að huga að nestisboxum á línuna, því nú fer sá tími að koma. Allir með nesti nema Röskva litla. Óliver vill bara brauð með remúlaði, svo ætli við verðum ekki tekin inn á teppið fljótlega á leikskólanum :).

1.ágúst hefst hin mikla aðlögun hjá börnunum þremur og þá verða afi og amma komin í hús, tilbúin að taka svæðið út. Amma Borghildur er búin að vera í heimsókn og á leið til Köben á morgun. Óliver spyr oft eftir öllum heima og vill fara í heimsókn, en er samt glaður í rauða húsinu sínu eins og hann kallar það.

Jæja, best að fara að brjóta saman föt og drekka rauðvín með múttí og Kim.

- 1 kommentar til Komin heim

8.júlí 2008

Hvað er títt? Jú. Við ætlum að panta gólfefni á morgun. Og eftir smá stund erum við Kim að fara að sparsla smá hluta af gólfinu til að gera klárt. Planið er að undirbúa gólfin og fara svo á Ölejr og slappa af og hafa það notalegt í viku, og þegar við komum til baka hefjumst við handa við gólfleggingu. Og já við Kim erum að fara í sólarhringsbrúðkaup á laugardaginn og mamma ætlar að hafa alla ungana á meðan. Ég ætla að reyna að vera ekki með áhyggjur af krílunum og bara skemmta mér og slappa af með Kim og vinunum og njóta sólarhrings frís.

Annars líður mér svona í dag, að mig langar nú bara í hversdaginn. Komið nóg af róti og fríi með allri 5 manna fjölskyldunni. 🙂 Og plani og fjárhagspælingum. En sú tilfinning gengur fljótt yfir. Og áfram gakk.

Óliver leist mjög vel á leikskólann sinn og hlakkar bara til að fara þangað aftur. Hann vildi ekki fara með mér heim, fannst held ég bara gott að vera í friði og leika sér almennilega með almennilegt dót.

Röskva er í stuði alla daga og er nú orðin alvöru krakki sem á regngalla, stígvél, skó og sandala. 🙂 En það má ekki líta af frökeninni, því hún er út um allt og upp um allt.

Máni er í frekar góðum gír og skiftir um tungumál eins og ekkert sé.

Jæja maðurinn kallar, sparslið bíður.

Kær kveðja, frú Erla á Mellemvej

 

- 1 kommentar til 8.júlí 2008

Málning og garðbúskapur

Jamm, ég fór upp að svæfa strákana þegar við vorum komin heim úr bænum, þar sem við fengum okkur að borða. Ég steinsofnaði. Örugglega ölinn sem ég renndi niður með matnum.. :)…ööö nei við erum svolítið þreytt þessa dagana..

Mánudag komu Lars og Troels (pabbi han Kim og litli bróðir hans) og þeir byrjuðu að undirbúa málningarvinnuna, meðan ég var með krakkana hjá vinkonu minni. Og það er ekki alltaf auðvelt að reyna að vera þægilgur gestur þegar maður á 1 stk. Röskvu og 1 stk. Óliver… 🙂 Miðvikudag sóttum við dótið okkar og plöntuðum því í garðinn og bílskílið og bárum rúmin upp á 1. hæð og sváfum öll í húsinu. Troels líka. Lars svaf í sínum bíl, eins og hann hafði gert og Hella (mamma hans Kim), kom líka í sirkuspartýið og er nú í tjaldi í garðinum. Sem sagt allt á fullu. Búið á mála í allan dag, en þetta gengur nú ekki mjög hratt á daginn, en Troels er brilliant hjálpari. Við höfum líka þurft að koma praktískum hlutum á hreint og á morgun fer Máni í heimsókn í skólann sinn að skoða, mánudaginn fer Óliver í heimsókn í leikskólann og fimmtudaginn hittum við dagmömmu Röskvu. Hinsvegar hafa Kim og Troels verið á fullu eftir að börn (og kona)sofnuðu í kvöld, svo morgundagurinn boðar gott. Í dag fór Hella með strákana á ströndina í 4 tíma og það er einnig plan morgundagsins, nema að Lars fer á morgun.

Við erum komin með garðhúsgögn og höfum búið utandyra á daginn, þar sem eldhús, bað og öll neðri hæðin er undirlögð. Þess vegna erum við þakklát fyrir að veðrið er búið að vera yndislegt, kannski heldur heitt fyrir alla þesaa vinnu 🙂

Allaveganna reynum við að anda djúpt, halda ró okkar og sigla þetta svona bara eftir bestu getu…. og ætli það gangi ekki eins og alltaf. Þetta reddast. Góða nótt. Erla

- 2 kommentarer til Málning og garðbúskapur