Miðvikudagurinn 5.nóvember 2008

6:30  vekjaraklukkan hringir. 

7:10 við mæðgur erum komnar í föt og ég rölti með Röskvu til dagmömmunnar. 

7:30 Við Óliver hjólum af stað og ég skila honum í leikskólann, þar sem hann sest og fær sér bollu með sultu.

7:45 ég legg hjólinu við skólann, sest inn á kennarastofu, glugga í blöðin og fæ mér kaffi.

8:00 Kenni stærðfræði í 4.bekk.

9:30 tímanum líkur og ég fer út til að vera í gæslu í frímínútunum. 

9:45 smá eigin frímínútur. 

10: 00 Kenni stærðfræði í 5.bekk.

10: 45 kenni ensku í 4.bekk. 

11:35  borð hádegismat.

11:45 fer aftur út í gæslu.

12:00 kenni aukatíma fyrir annan kennara. 

12:50 sest niður og skrifa mat um nemendur í öðrum 5.bekknum. 

13:30 fundur

14:30 annar fundur (eitt foreldri hringir og vill spjalla, ég lofa að hringja seinna).

15:15 Hjóla í ullarpeysu og regnfötum upp brekkurnar og kaupi í matinn (fer beint í frystikistuna í búðinni og kaupi tilbúnar kartöfflur, kjötbollur og reyndar lífrænt pasta). Hringi í nágrannann og spyr hvort Óliver megi bíða hjá henni í smá stund á meðan ég sæki hin. 

15:30 sæki Óliver og hjóla með hann til nágrannans. 

15:43 sæki Röskvu og hjóla með hana í frístundaheimilið til Mána og sæki hann. 

16:10 á leiðinni heim, ætla að sækja Óliver hjá nágrannanum en hann vill ekki koma heim. Í staðinn fer Máni líka í heimsókn þangað. 

Ég skrepp heim, hringi í foreldrið og gef Rösvku seríós á meðan. 

17:00 strákarnir koma heim og með Mána tveir vinir. Ég set matinn í ofninn.

17:30 þrír krakkar gráta.

17:35 við borðum

18:00 Kim kemur heim. þvottastand, náttföt, tannburstun og ungarnir komnir í rúmið 19:25. 

19:30 ég smyr nesti

Og nú sit ég hér og ætla að fara að undirbúa mig á meðan Kim er í sjónvarpsviðtali uppi í stofu. 🙂 Vonandi verða þeir búnir fyrir 20:35 þegar desperate houswifes byrjar.

- 4 kommentarer til Miðvikudagurinn 5.nóvember 2008

4 Replies to “Miðvikudagurinn 5.nóvember 2008”

  1. Sæl dúllan – ekkert smáafrek – þú ert hvundagshetja.

    kveðja mamma

    P.S. Gott samt að geta hlakkað til einhvers þó að það sé bara að horfa á sjónvarpið á kvöldin. Ég ætla að horfa á “Looking good naked” í kvöld. Var að koma heim. Búin að sitja með Bergþóru og Magnúsi (hann var í Grundaskóla) í stærðfræði í 2 og 1/2 tíma.

  2. ja maður hefur það nú bara rólegt, vantar ykkur ekki aupair mín kæra, væri alveg til í að prófa það
    kveðja frænka

  3. Úff, ég svitnaði bara við að lesa um allt þetta sem þú afrekar á einum degi!

    Þú ert ótrúlega dugleg Erla mín!

    En kæmpe krammer,
    Heiðrún

  4. Hljómar kunnuglega, en eins og vinkona mín sagði ” you´re still going strong”

    Minar hjartans bestu baráttukveðjur

Skriv et svar til mamma Annuller svar

Din e-mailadresse vil ikke blive publiceret. Krævede felter er markeret med *