Mánudagsblogg.

Á föstudaginn fór ég til Köben og út að borða með Ingu, Ragnheiði og Elísabetu 🙂 Í tilfefni afmælis Ragnheiðar. Rosalega huggó og brilliant matur. Alltaf gaman að vera með fólki sem maður hefur þekkt í bráðum 27 ár. Alveg ómetanlegt 🙂

2011-03-25 001 2011-03-25 002

Svo fór ég að hitta vinnufélagana í mennigarferð á laugardeginum, líka í Köben og Inga var svo sæt að gera þessa rosalegu fínu fléttu í mig, þó hún hefði í nógu öðru að snúast.

2011-03-26 002

Sunnudagur var vordagur. Allan daginn í garðinum og svo fór frú Nike að hlaupa, í fyrsta sinn nógu hlýtt til að vera í flotta jakkanum sem ég fékk í jólagjöf. Mér finnst ég svakalega pró í þessu fína Nike dressi 🙂

2011-03-27 001

Og svo er nýtt tímabil hjá dóttur minni, sem heitir naglalakk 🙂 Sem betur fer átti ég naglalakk inn í ískáp, sem ég hafði fengið fyrir löngu. Hún var ekki alveg sátt við litinn og ég er búin að lofa henni að kaupa fjólublátt naglalakk. Og að hún megi fá göt í eyrum þegar hún verður 8 ára, en að hún verði að bíða með að lita á sér hárið fjólublátt (sem hún bað um, um daginn). Ég veit ekki alveg hvaðan daman hefur þetta, og ég er svolítið stressuð yfir því að geta ekki verið henni nægur stuðningur í pæjuskapnum 😉

2011-03-27 002 2011-03-27 003

- 4 kommentarer til Mánudagsblogg.

4 Replies to “Mánudagsblogg.”

  1. verður að taka þig á í pæjudeildinni
    eða láta Beggu um þetta og aðrar frænkur
    gaman amma getur farið að senda snyrtidót
    kveðja frænka

  2. Einhver misskilningur hjá mömmunni, þetta er ekki pæjuskapur. Hún vill bara vera töff og hefur skapandi hugsun. Af nógu er að taka í fjölskyldunni sama hvert litið er.
    knus amma

    P.S. Þetta er primature sjálfstæðisbarátta.

  3. Frú Nike, þú er bara flottust.
    Ég er algjörlega sammála þér með fólk sem maður er búin að þekkja lengi og líður vel með. Við kerlingarnar í klúbbnum erum búnar að hittast í meira en 20 ár, ótmetanlegt.
    knus mamma

Skriv et svar til hella Annuller svar

Din e-mailadresse vil ikke blive publiceret. Krævede felter er markeret med *