Elsku Máni minn á afmæli í dag 🙂 Orðin 8 ára. Þá er maður svolítið stór. Við erum mjög stolt af okkar strák.
Kvöldið áður.
Svo var hann vakin með gjöfum og söng 🙂 Glaður gaur!
Og Röskva og Múggí mjög áhugasöm um gjafirnar.
Óliver finnst svolítið erfitt að eiga ekki afmæli með hinum tveimur…. en hann klárar sig á því kallinn.
Svo er verið að gera klárt fyrir gestina. Röskva hafði verið hjá tannsa í dag og Óliver hjálpaði henni í gegnum það, því hann hefur reynsluna 🙂
Mána langaði svo í svona “kagemand”, svo við keyptum í Fötex 🙂
Nágrannabörnin komu í afmæli og það var farið í leiki, því það rigndi svo mikið að skattejagten varð hálf vonlaus.
Svo kom Alma líka og varð aðeins lengur en hinir og þau 2 fóru út að leika sér í rigningunni. Og nú sofa allir í hausinn á sér 🙂
Góðar stundir frá frú E – mömmu Mána
- 2 kommentarer til Til hamingju með Mána okkar – 8 ára. Hann er frábær.
hæ þetta hefur verið flottur dagur,
pakkar á leiðinni með afa og ömmu
og nammi
moster
Til hamingju með afmælið Máni – frá okkur öllum í Hæðargarðinum.
Ísak, Freyja, Marta, Bryndís & Jürgen
p.s. eignuðumst lítinn frænda á afmælisdaginn hans Mána – ekkert smá flott dagsetning, sem þessi afmælisdagur lendir á!