Sunnudagur enn á ný og í fréttum er þetta helst :-)

Síðasta bloggið mitt sem 33 ára kona. Hmmmm. :-)

Hér er ég á Leonard Cohen tónleikum, sem haldnir voru í gær. :-) Fékk þennan miða í afmælisgjöf frá Kim. Bestu tónleikar sem haldnir hafa verið – ég hef bara aldrei upplifað aðra eins stemmingu. MMMMMM.

DSC00227

Og ef vel er að gáð stendur Cohen á miðju sviðinu :-)

DSC00225

Og annars er það að frétta að ég fór með Óliver til lappalæknis á fimmtudaginn, því vinstri löppin er styttri en sú hægri. En það kemur ekki að sök og á hann að koma aftur eftir ár, til að athuga hvort bilið hefur aukist. Við nýttum ferðina til Odense og skruppum á Jensens buffhús við tvö og höfðum það huggulegt.

DSC00222

Í dag skruppum við í smá krabba veiðiferð með ungunum okkar og nágrannanna.

DSC00232

Og svo voru myndir frá Íslandi á símanum mínum. Eins og þessi mynd af flottum frændum :-)

DSC00196

Og þessi mynd af Röskvu sem sofnaði svona alveg útkeyrð ;-)

DSC00214

Annars erum við enn að máta okkur í hversdaginn. Ungarnir þurfa að venjast því að við erum ekki lengur í fríi og mamma og pabbi þurfa að versla, þvo, elda og vinna líka…… það tekur aðeins á ;-) Svo erum við að æfa okkur í að eiga bíl og þurfum kannski líka að skilja það að þó við eigum bíl, þá ber okkur ekki skylda til að vera á ferðinni ;-)

Og ég er búin að bjóða 30 manns í grill á morgun, uppi í skóla. Ákvað að reyna að safna samen einhverju liði og halda upp á daginn. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður verður 34 ára :-)

Góðar stundir.

En tanke om "Sunnudagur enn á ný og í fréttum er þetta helst :-)"

Skriv et svar

Din e-mail-adresse vil ikke blive offentliggjort. Krævede felter er markeret med *

*

Disse HTML koder og attributter er tilladte: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>