Ragnheiður komin og Kim farinn.

á Miðvikudagskvöldið komu gestir og Kim fékk far til Köben. Huggulegt hjá okkur, en hann er nú ekki alltaf kvaddur með svona veislu gamli kallinn! ;-)

DSC05556

Á fimmtudagsmorgni komu svo Asger – vinur hans Ólivers, litli bróðir hans og mamman – vinkona mín og fengu sér morgunkaffi og Asger varð svo eftir að leika.

DSC05558 DSC05564

Máni fékk Andreas og Johnny í heimsókn, svo það voru 5 gaurar og ein prinsessa í garðinum :-) Ég stóð mig vel, bakaði muffins og hitaði kaffi fyrir sækjandi mæður og var voðalega mömmuleg ;-)

DSC05567

Svo kom Ragnheiður :-) Húrra! og í töskunni leyndust þessi flottu sumarföt frá afa og ömmu í Ekrunni. :-) Takk fyrir þetta.

DSC05570 DSC05573 DSC05572

Kjúklingur í kvöldmatinn.

DSC05574

Í dag var líka frí, svo ég fór og náði í bíl, sem við leigðum og við fórum í “den fynske landsby” sem er svona svolítið eins og Árbæjarsafn. Og keyrðum svo í Smörmosen á Thurö og fengum okkur ís og kaffi þar og lékum okkur.

DSC05578

Við Ragnheiður vorum svo að horfa á eina bíómynd og nú kallar bælið. Góðar stundir.

En tanke om "Ragnheiður komin og Kim farinn."

  1. Þau eru bara flott í nýju sumarfötunum. Þú ert duglegust Erla mín, muffins eða ekki muffins.
    Gæti vel hugsað mér að sitja með ykkur í kaffi en það er nú ekki langt þangað til að ég kem.

    mamma

Skriv et svar

Din e-mail-adresse vil ikke blive offentliggjort. Krævede felter er markeret med *

*

Disse HTML koder og attributter er tilladte: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>