Ferðamál :)

Nú nú, fólk er alltaf að ræða við mig um landið mitt fagra, kreppuna og annað gott. Og stundum er fólk að biðja um hjálp eða ráð eða þ.h. 🙂

Einn samstarfsfélagi minn er að fara til íslands í sumar í viku, eða 10 daga og langar að annaðhvort skifta á húsnæði eða leigja af einhverjum. Er einhver til í þetta? Þau búa í fínu húsi á Thurø sem er yndislegur hluti af Svendborg. Tíminn skiftir ekki öllu máli, en einhvern tíman í sumarfríi kennara hér, sem er lok júní og fram til 10.ágúst ca.

Svo er annar sem ég þekki, sem er með veiðidellu að spá í veiði á Íslandi. Ekki endilega lax… en eitthvað sem er ekki svo dýrt að bara bill Clinton getur farið að veiða. Veit einhver eitthvað um þetta?

Og ég farin að kúra á föstudagskvöldi 🙂 góða nótt.

- 2 kommentarer til Ferðamál :)

2 Replies to “Ferðamál :)”

Skriv et svar

Din e-mailadresse vil ikke blive publiceret. Krævede felter er markeret med *