- Ég og ungarnir komum heim til íslands 6. apríl og verðum til 15.apríl 🙂
- Það er vetrarfrí núna og í dag settum við ungana í pössun á leikskólanum, dagmömmunni og frístundaheimilinu. Ég fór heim og lagði mig og vaknaði 13:30. Fílaði mig eins og með unglingaveikina.
- Röskva getur sagt “mere”.
- Á morgun fara ungarnir aftur i pössun, en þá verður mér vonandi eitthvað úr verki.
- Miðvikudag til sunnudags verðum við svo í fríi saman. Við ætlum að fara í mat til Frank og Louise, dýragarðinn, og Máni ætlar að heimsækja vin sinn Alex, svo eru nágrannarnir okkar búin að bjóða okkur í mat á föstudaginn og þegar við sögðum krökkunum það sagði Máni: “það verður sko huggulegt”.
- Við ætlum að reyna að horfa á bíómynd í kvöld, það er smá sjéns að ég geti haldið mér vakandi ákkúrat í dag 🙂
Húrra húrra, förum strax að búa um rúmin. Þetta verða flottir páskar. Arnór Breki verður glaður að hitta frændur og frænkur.
JEIJ! =D
hæ mikið er gaman að þið eru að koma í heimsókn hlakka til að sjá ykkur
kveðja ragnheiður
jesssssss, nú heita öll börn á öllum myndum Máni og alltaf sagt með jafn gleðilegri röddu. Ég get bara lánað Máni baby björninn og þá getur Arnór kúrt hjá honum í viku 🙂 Þið eruð alltaf velkomin að gista í herberginu hans Arnórs 😉